Tengsl hreyfingar og heilsu: Þýðisrannsókn á eldri körlum og konum á Íslandi
Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Megin tilgangur rannsóknarinnar var að auka þekkingu á því hvernig hreyfing, kyrrseta og svefn tengjast heilsu eldra fólks á Íslandi. Notast var við safn mælinga í stóru, vel skilgreindu úrtaki eldra fólks sem tóku þátt í öðrum fasa Öldrunarrannsóknar Hjartaverndar. Einnig var kannað hvort rúmmálsbreytingar í heilanum væru tengdar hreyfingu og kyrrsetu. Hreyfing þátttakenda var mæld með hreyfimælum. \nRannsóknin leiddi í ljós að kyrrseta er stærsti hlutinn af heildar notkunartíma hreyfimælisins hjá þátttakendum, eða um 75%, en í kjölfarið kom mjög létt hreyfing með um 21%. Hreyfing af miðlungs- eða mikilli ákefð var <1%. Aldur hafði sterkustu tengslin við kyrrsetu sem og allar hreyfibreytur. Á sumrin var meiri tíma eytt í alla flokka hreyfingar, fyrir utan hreyfingu af miðlungs- eða mikilli ákefð og var kyrrseta minni. Sýnt er fram á langan svefntíma eldra fólks á Íslandi, en þátttakendur vöknuðu fyrr á sumrin sem leiddi til minni heildar hvíldartíma. Hreyfing hafði lítil en marktæk áhrif á svefnseinkun og svefntíma. Einnig voru tengsl milli heilarýrnunar og hreyfingar staðfest, sem og milli heilarýrnunar og kyrrsetu. \nHreyfing hjá eldri Íslendingum er mjög lítil og svefntími almennt langur. Þær litlu breytingar á hreyfingu og svefnmynstri sem koma fram í þessari rannsókn við mismunandi birtustig, gefur til kynna að Íslendingar hafa aðlagast vel að þeim árstíðabundnu breytingum sem verða á birtustigi á landinu. Með því að fá fólk til að hreyfa sig meira, gætu meiri möguleikar skapast til þess að lifa sjálfstæðara lífi og auka lífsgæði á efri árum. Þetta er staðfest með þeim tengslum sem komu í ljós á milli hreyfingar, kyrrsetu og heilarýrnunar í rannsókninni.
Source: Skemman
Author: Nanna Ýr Arnardóttir 1982
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Physical Activity and Health
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Keywords: older adults, physical activity, sedentary behavior, sleep duration, sleep quality, seasonal variation, body composition, body mass index, body fat percentage, heart rate, heart rate variability, heart rate recovery, blood pressure, blood pressure variability, blood glucose, serum lipids, triglycerides, HDL cholesterol
Open Access status: green
Awards: G230712557, G3402222819
OpenAlex ID: W7006369788
