Work

Tvítyngi og máltileinkun: áhrif tvítyngis á manninn og máltileinkun þriðja máls

Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Þessi ritgerð er lögð fram sem lokaverkefni til B.A.-prófs í íslensku. Í henni er fjallað um máltöku móðurmáls, máltileinkun annars og erlends máls og hvaða eiginleikum fólk býr yfir sem hefur byggt upp fleiri en eitt málkerfi á máltökuskeiði. Fyrst er rætt um máltökuna og skilgreiningu ýmissa hugtaka sem tengjast henni. Þá er gerð grein fyrir mismunandi skilgreiningum á tvítyngi og farið yfir hugmyndir fræðimanna um kosti þess og galla að vera tví- eða fjöltyngdur. Að lokum er fjallað um álit fræðimanna á áhrifum tví- eða fjöltyngis á máltileinkun og á heilann og hvernig eintyngdir koma út í samanburði við tví- eða fjöltyngda. Mikið hefur verið skrifað um kosti tvítyngis á undanförnum árum en í dag hafa fræðimenn og almenningur allt aðra skoðun á tvítyngi en áður var. Í upphafi 20. aldar og fram um 1960 töldu fræðimenn að tvítyngi væri hættulegt börnum; þau væru seinni til máls en eintyngd börn og byggju því yfir minni orðaforða og væru verr stödd hvað varðar nám en börn sem ættu sér aðeins eitt móðurmál. Á seinni árum hafa rannsóknir hins vegar sýnt fram á að tví- og fjöltyngd börn virðast almennt betur sett með tilliti til náms þar sem þau búa yfir fleiri en einu málkerfi sem eykur úrvinnslugetu heilans og gerir þeim m.a. kleift að skilja betur aðra menningarheima og samræðulögmál. Einnig hafa rannsóknir sýnt að þótt orðaforði þeirra sé minni í hvoru máli fyrir sig búi þau þegar á heildina er litið yfir meiri orðaforða en eintyngd börn. Niðurstöður eru ekki eins skýrar þegar kemur að áhrifum tví- og fjöltyngis á málfræðikunnáttu einstaklinga þótt ýmislegt bendi til þess að það styðji við frekari máltileinkun en hitt. Það er því áhugavert að velta fyrir sér ýmsum þáttum sem gætu haft áhrif á máltileinkun hjá tvítyngdum og skoða kosti þess og galla að eiga sér fleiri móðurmál en eitt.
Source: Skemman
Author: Þórður Arnar Árnason
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7006447814
Cites: 52
Cited by:
Related to: 10