Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Vímuefnaröskun hjá ungu fólki getur haft alvarlegar afleiðingar og því er mikilvægt að greina áhrifaþætti til að draga úr líkum á að ungt fólk þrói með sér vímuefnaröskun. Markmið þessarar ritgerðar var að skoða áhrifaþætti vímuefnaröskunar hjá ungu fólki til að meta hverjir eru í aukinni áhættu á að þróa með sér vímuefnaröskun. Leitað var svara við eftirfarandi rannsóknarspurningu: Hvaða áhættu- og verndandi þættir hafa áhrif á þróun vímuefnaröskunar hjá ungu fólki? Til að komast að niðurstöðu skoðaði höfundur rannsóknir og fræðiefni sem tengist þróun vímuefnaröskunar hjá ungu fólki og tók saman helstu niðurstöður. Það leiddi í ljós að ungt fólk verður fyrir áhrifum af umhverfi sínu með tilliti til hegðunar og þroska. Áhættuþættir sem auka líkur á að ungt fólk þrói með sér vímuefnaröskun komu einnig í ljós en þeir eru vímuefnanotkun foreldra, ofbeldi og vanræksla, efnahagur, geðraskanir, þroskahömlun, námsárangur og ADHD. Verndandi þættir sem einstaklingar búa við eru andstæður áhættuþátta auk þess sem seigla einstaklings getur dregið úr neikvæðum áhrifum áhættuþátta. Út frá því má draga þá ályktun að þróun vímuefnaröskunar hjá ungu fólki er flókið ferli sem byggir á ýmsum þáttum. Fjöldi áhættu- og verndandi þátta í lífi einstaklinga getur haft áhrif á þróunina.
Source: Skemman
Author: Brynja Kristinsdóttir Wiium
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Epidemiology
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Keywords: substance abuse, youth, adolescents, protective factors, risk factors, parental substance use, peer influence, substance use prevention, attention deficit hyperactivity disorder, mental health, self-esteem, coping strategies, family support, school support, addiction treatment, drug education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7006471294
