Uppgangur þjóðernispopúlisma beggja vegna Eyrarsunds: Samanburður á uppgangi þjóðernispopúlískra flokka í Danmörku og Svíþjóð
Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Stjórnmálaflokkar sem bera með sér einkenni þjóðernispopúlisma hafa verið á gríðarlegri uppleið síðustu áratugi. Þjóðernispopúlískir flokkar áttu til að byrja með erfitt uppdráttar í Svíþjóð, ólíkt hjá nágrönnum þeirra í Danmörku. Í þessari ritgerð verður fjallað um þjóðernispopúlíska flokka innan Danmerkur og Svíþjóðar. Saga, fylgi og kjósendur flokkanna verður rakin og lagt verður mat á síðustu tvær þingkosningar innan ríkjanna tveggja. Niðurstöður gefa til kynna að ástæða þess að Svíþjóðardemókratar, þjóðernispopúlíski flokkur Svíþjóðar, hafi átt erfitt til að byrja með megi rekja til þátta eins og lítilla fjölmiðlaumfjöllunar um flokkinn, áhugaleysi kjósenda um helstu álitamál Svíþjóðardemókrata, sem eru innflytjendamál og rætur flokksins til nasista- og fasistahreyfinga. Danski þjóðarflokkurinn, þjóðernispopúlíski flokkur Danmekur, hefur hins vegar frá stofnun gengið gríðarlega vel, þangað til í síðustu þingkosningum þegar hann missti meira en helming fylgis, en það gerðist í kjölfar þess að hefðbundnu flokkarnir tóku upp svipaða umræðu og Danski þjóðarflokkurinn. Þá höfðu danskir kjósendur tækifæri til að kjósa nýja og róttækari flokka, líkt og Danski þjóðarflokkurinn var til að byrja með.
Source: Skemman
Author: Ásdís Jóhannsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7006486485
