Work

Tónmennt og stærðfræði : mögulegir snertifletir til samþættingar kennslu

Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Eftirfarandi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed.-prófs við Kennaradeild Háskólans á Akureyri. \nÍ verkefni þessu er leitast við að svara þeirri spurningu hvort stærðfræði og tónmennt eigi \nsnertifleti sem nota megi til samþættingar kennslu. Einnig verður læsishugtakið skoðað í \nsamhengi við hvora námsgrein fyrir sig og með því lagður grunnur að kennsluhugmyndum \nsem samþætta tónmennt og stærðfræði. Hugtök á borð við mynsturlæsi verða skoðuð \nsérstaklega þar sem mynstur koma fyrir bæði í tónlist og stærðfræði. Snertifletir þessara faga \neru athugaðir út frá tveimur meginþáttum tónfræðanna, tónhæð og tónalengd. Tónhæð á sér \nstærðfræðilega tengingu sem hægt er að rekja aftur til Forn-Grikkja. Nöfn nótnanna verða \nskoðuð út frá mynstrum og hvernig má setja þau fram svo nemendur geti betur skilið virkni \nþeirra. Tónstigar og kirkjutóntegundir verða þá skoðaðar með það að markmiði að nemendur \ngeti nýtt sér mynstureiginleika þeirra til að öðlast betri skilning á tónlist. Nótnalengdir verða \neinnig skoðaðar og hvernig þær tengjast brotareikningi. \n Nýjar áherslur varðandi læsi gefa möguleika á að skoða hugtakið í víðara samhengi. \nLæsi er ekki lengur aðeins sú aðgerð að lesa staf af bók heldur er það nær því að mynda \nmerkingu úr mismunandi byggingareiningum og táknum. Mismunandi heimildir verða \nskoðaðar sem varpa ljósi á hvaða þættir það eru í læsi sem snúa að þessum tveimur fögum, \ntónmennt og stærðfræði. Þrjár kennsluhugmyndir verða settar fram sem snúa að nótnaheitum, \ntónstigum og nótnalengdum. Leitast verður við að nemendur fái að vinna með efnið á sem \nflestan máta og á mismunandi miðlum. Einnig eiga nemendur að fá að vinna með efnið í tölvu \nog búa til stuttar laglínur. Allt miðar þetta að því að nemendur fái aukna leikni í hvoru fagi \nfyrir sig auk þess sem þetta auki möguleika þeirra sem fá eða hafa áhuga á tónlist að gera \nsínar eigin tilraunir.
Source: Skemman
Author: Ragnar Jón Ragnarsson 1986
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7006554360
Cites: 14
Cited by:
Related to: 10