Work

Útskriftarvandi Landspítalans. Leit að lausnum.

Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Landspítalinn glímir við flæði- og útskriftarvanda þar sem ekki er hægt að útskrifa aldraða sjúklinga vegna skorts á ytri úrræðum. Erlendar rannsóknir sýna að útskriftarvandi veldur álagi á starfsemi spítala og starfsfólks hans, ásamt því að biðtíminn getur haft alvarlegar afleiðingar á heilsu aldraðra og annarra bráðveikra sem þurfa á plássinu að halda. Markmið þessarar rannsóknar var að greina útskriftarvanda Landspítalans, hver áhrif hans eru og hvaða lausnir eru vænlegar til að greiða úr vandanum. Notast var við lýsandi eigindlega rannsóknaraðferð í formi viðtala og greiningu þeirra. Viðtöl voru tekin við sex starfsmenn Landspítalans sem hafa reynslu af útskriftarmálum. \nNiðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að útskriftarvandi Landspítalans hefur víðtæk og neikvæð áhrif á starfsemi spítalans, starfsfólk hans, sjúklinga og aðstandendur þeirra. Útskriftarvandinn veldur þrýstingi á flæði, útskriftarvinnan er mikil og margar hindranir komu í ljós. Innan spítalans er of seint hugað að útskriftarferlinu, skráningu getur verið ábótavant ásamt því að vanda mætti betur til útskriftar. Utan spítalans er mikill skortur á úrræðum, samstillingu og sveigjanleika. Starfsfólk Landspítalans finnur fyrir álagi, kvíða, lýjandi samskiptum og uppgjöf þegar kemur að útskriftarmálum. Aldraðir sjúklingar finna einnig fyrir kvíða vegna óvissunnar og biðtíminn er skaðlegur heilsu þeirra og færni. Aðstandendur eru margir ráðþrota en vilja öryggi fyrir sinn nánasta. Viðmælendur greindu þá frá bjöguðum og neikvæðum samfélagslegum viðhorfum gagnvart öldruðum og skorti á fagþekkingu á málefnum aldraðra hjá stjórnvöldum. Tillögur að lausnum til að greiða úr útskriftarvanda Landspítalans eru margþættar. Starfsfólk Landspítalans ætti að byrja útskriftarferlið fyrr og vanda betur til, fjölga þarf úrræðum utan Landspítalans, efla það sem er til nú þegar og samþætta þjónustu til að einfalda hana. Mikilvægt er að mótuð sé heildræn stefna í málefnum aldraðra, henni sé fylgt eftir með skýrum hlutverkum og ábyrgð hvers og eins.
Source: Skemman
Author: Guðfríður Hermannsdóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7006610716
Cites: 56
Cited by:
Related to: 10