„Við erum að nálgast fólk sem manneskjur“ : skoðanir og upplifanir íþróttafræðinga af starfi þeirra í geðendurhæfingu með batahugmyndafræði
Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Markmið: Markmið rannsóknar var að nýta batahugmyndafræði til að öðlast innsýn í upplifun og skoðanir íþróttafræðinga á starfi þeirra í geðendurhæfingu. Aðferð: Rannsóknin var eigindleg og framkvæmd voru viðtöl við fjóra íþróttafræðinga sem starfa í geðendurhæfingu. Niðurstöður: Íþróttafræðingar hafa skapað ný hreyfiúrræði í geðheilbrigðiskerfinu sem eru einstaklingsmiðuð. Notendur og íþróttafræðingar eru í aðstæðum sem mynda einstök og persónuleg tengsl. Nálgun íþróttafræðinga er að vekja áhuga skjólstæðinga á líkamlegri virkni og tengja þá síðan út í samfélagið. Hins vegar hefur stéttin fengið takmarkaða viðurkenningu. Hún hefur barist fyrir því að öðlast sérstöðu, tilheyra heilbrigðisstétt, vekja áhuga notenda og hafa aðgang að heilbrigðisgögnum og auknu fjármagni. Ferill þeirra er valdeflandi því íþróttafræðingarnir hafa skorað á og gagnrýnt handhafa valds til hjálpar og árangurs. Ályktun: Hægt er að segja að valdefling nýrrar stéttar geti skilað árangri í geðendurhæfingu með því að auka sjálfræði og virkni notenda. Niðurstöður benda til þess að þeir íþróttafræðingar sem beita valdeflingu gegni mikilvægu hlutverki í að skapa og þróa þjónustu sem er í takt við núverandi heilbrigðisstefnu og geðheilbrigðisstefnu.
Source: Skemman
Author: Kristján Hjartarson
Institution: Reykjavík University
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7006626713
