Year: 2024
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Bakgrunnur: Heilbrigðiskerfið er ein af grunnstoðum samfélagsins og mikilvægt að það starfi eins vel og mögulegt er. Stofnanir verða fyrir miklum kostnaði vegna veikinda starfsfólks, bæði vegna afleysinga og ráðninga. Hægt er að grípa til aðgerða til að lækka veikindatíðni, tryggja fullnægjandi mönnun og draga þar með úr kostnaði. \nTilgangur: Að skoða veikindafjarvistir hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) á árunum 2018–2023. Markmiðið var að geta sagt til um hvaða hópar væru helst frá vinnu vegna veikinda í því augnamiði að geta unnið að því að fækka veikindafjarvistum. \nAðferð: Lýsandi afturskyggn langtíma panelrannsókn þar sem notuð voru fyrirliggjandi gögn frá HH um veikindafjarvistir starfsfólks. Veikindafjarvistir voru metnar út frá stigum vegna veikindafjarvista síðustu 52 vikna ár hvert samkvæmt Bradford-kvarðanum. Skilyrði fyrir þátttöku í rannsókninni var að hafa verið starfandi öll sex árin sem rannsóknin náði til, alls 290 einstaklingar (87% konur). \nNiðurstöður: Veikindafjarvistum fækkaði milli áranna 2018 og 2020 en jukust fram til ársins 2023, munurinn á veikindafjarvistum reyndist þó ekki marktækur á rannsóknartímanum (F(5,285)=1,75; p>0,05). Nánari greining á gögnunum sýndi að hlutfall þeirra sem var yfir viðmiðunarmörkum HH um veikindafjarvistir þannig að bregðast þurfti við tíðum og óvenjulegum veikindafjarvistum var marktækt yfir rannsóknartímann (p<0,05). Sama niðurstaða kom fram hjá konum, starfsfólki með minnstan starfsaldur, læknum, hjúkrunarfræðingum, starfsfólki á skrifstofu og starfsfólki á heilsugæslu/geðheilsuteymum. Niðurstöðurnar sýndu einnig að tími var eini þátturinn sem spáði fyrir um líkur á inngripi vegna veikindafjarvista að teknu tilliti til kyns, aldurs, starfsaldurs, starfsstéttar og starfsstöðvar (p<0,05). \nÁlyktun: Niðurstöðurnar sýna að veikindafjarvistir hafa aukist hjá starfsfólki HH og á þessi þróun við um langflesta hópa innan HH. Til þess að leitast við að fækka tíðum og stuttum veikindafjarvistum er mikilvægt að skoða starfsumhverfi starfsfólks HH og jafnvel að innleiða einhvers konar vellíðanaráætlun og beina sjónum að öllu starfsfólki HH.
Source: Skemman
Author: Eyrún Ösp Guðmundsdóttir 1980-
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7006636609
