„Við vitum að þörfin er til staðar“ Þarfagreining á kvennaathvarfi fyrir konur með alvarlegan vímuefnavanda
Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á hvort þörf sé á kvennaathvarfi fyrir konur með alvarlegan vímuefnavanda og hvort þær verði fyrir fordómum í samfélaginu. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð þar sem tekin voru viðtöl við níu konur. Sex þeirra starfa innan málaflokksins og þrjár nýta sér þjónustu innan hans. \nNiðurstöður rannsóknarinnar gefa vísbendingu um að þörf sé á kvennaathvarfi fyrir konur með alvarlegan vímuefnavanda. Þátttakendur rannsóknarinnar töldu mikilvægt að starfrækt sé athvarf fyrir konur með vímuefna vanda þar sem þær eru oft á tíðum heimilislausar og eru í meiri hættu á að lenda í ofbeldi í nánum samböndum. Í rannsókninni kom í ljós að viðmælendur voru sammála um að mikilvægt væri fyrir konurnar að fá eigið herbergi til að stuðla að öryggistilfinningu þeirra. Einnig kom í ljós að fagfólk sem vann við málaflokkinn fannst mikilvægt að starfshópurinn væri blandaður, að fólk sem sinnti þessum störfum byggi yfir fagþekkingu og reynslu af málaflokknum. Ekki þótti ákjósanlegt að blanda saman konum með alvarlegan vímuefnavanda og þeim sem glímdu ekki við sama vanda. Niðurstöður sýndu einnig að þessar konur verða fyrir fordómum í samfélaginu sem geta hindrað þjónustu til þessara kvenna. \n \n \nLykilorð: Kvennaathvarf, alvarlegur vímuefnavandi, heimilisleysi, fordómar.
Source: Skemman
Author: Sigfríður Ólafsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Gender and Feminist Studies
Subfield: Gender Studies
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7006683447
