Warm-up exercises for choir singers: A study on the effects of warm-ups on choir singers‘ vocal quality and experience
Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Inngangur: Söngur í áhugamannakór getur haft mjög jákvæð áhrif á lífsgæði einstaklinga og þar af leiðandi á samfélagið í heild sinni. Þessi tegund kóra gerir almennt ekki kröfu um söngreynslu eða -nám og eru oft samsettir að mestu leyti af fullorðnum áhugasöngvurum (miðaldra eða eldri). Þrátt fyrir lýðheilsulega kosti eru rannsóknir á raddgæðum kórsöngvara og upplifunar þeirra við söng fáar. Flestir kórstjórar byrja æfingar á upphitunaræfingum sem eiga að bæta raddgæði en lítið er vitað um raunveruleg áhrif slíkra æfinga á raddir fullorðinna áhugasöngvara. \nMarkmið: Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvort og hvernig áhrif upphitunaræfinga, samanborið við engar upphitunaræfingar, hafa á raddgæði (e. vocal quality) og upplifun söngvara í áhugamannakórum. Auk þess var fylgni skoðuð milli breyta tengdum raddgæðum (þ.e. útkomu úr hljóðeðlisfræðilegum mælingum) annars vegar og upplifun þátttakenda á eigin rödd hins vegar. \nNiðurstöður: Enginn marktækur munur fannst á milli tilraunahópsins (sem gerði upphitunaræfingar) og samanburðarhópsins (sem þagði í tíu mínútur) á neinni raddgæðabreytu, hvorki hljóðeðlisfræðilegum mælingum né á sjáfsmatskvörðum. Hinsvegar var tölfræðilega marktæk fylgni milli líðanar í rödd og fimm af átta raddgæðabreytum: f0 (bæði í samfelldu tali og löngu sérhljóði), efri mörkum raddsviðs (og þar af leiðandi raddsviðs) og raddstyrksflökti (e. shimmer). Tölfræðilega marktæk fylgni mældist á bilinu -0.194 (raddstyrksflökti) og 0.334 (efri mörk raddsviðs). \nUmræður og ályktanir: Tölfræðilega marktæk fylgni var milli mats þátttakenda á eigin raddlíðan og raddgæða óháð hvort þeir væru í tilraunahópi eða samanburðarhópi. Hærri skorgildi á kvarðanum um raddlíðan tengdist lægra raddstyrksflökti, hærri grunntíðni (f0) og breiðara raddsviði. Þetta gefur til kynna að nota megi raddlíðan sem vísbendingu um raddgæði og það að einblína á raddlíðan geti hugsanlega leitt til bættra raddgæða. Eðlileg gildi allra þátttakenda í tengslum við raddgæði og sjálfsmat á öllum tímapunktum rannsóknarinnar benti til þess að eldri áhugakórsöngvarar séu almennt með nokkuð eðlilega rödd. Þess vegna má velta fyrir sér hvort nauðsynlegt sé að vera með upphitunaræfingar, a.m.k. ef tilgangurinn er að bæta raddgæðin eða koma í veg fyrir misbeitingu raddar á kóræfingum. Hins vegar er þessi tegund mælinga ófullnægjandi til þess að hægt sé að draga ályktanir varðandi raddböndin sjálf og þyrfti annars konar mælingar til að meta líffræðilega þætti eins og blóðflæði til barkakýlis. Enginn marktækur munur fannst á hópunum varðandi upplifun þátttakenda á líðan og áreynslu (utan grunnlínumælingar á líðan). Fylgni milli líðanar og raddgæða bendir til þess að áhersla á líðan í rödd gæti bætt raddgæði. Þessar niðurstöður benda til þess að upphitunaræfingar einar og sér gætu verið ófullnægjandi til þess að bæta raddgæði og upplifun fullorðinna áhugakórsöngvara. Þörf er á fleiri rannsóknum á þessu sviði.
Source: Skemman
Author: Anna Bjarnsteinsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Music
Field: Arts and Humanities
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7006837836
