Year: 2017
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Inngangur: Æfingaálag hjá ungu íþróttafólki hefur aukist á síðastliðnum árum. Rannsóknir gefa til kynna að samband sé á milli æfingaálags og meiðslatíðni hjá íþróttafólki. Íþróttameiðsli geta verið stórt vandamál. Lítið er til af rannsóknum á íþróttameiðslum barna og unglinga á Íslandi. \nMarkmið: Kanna meiðslatíðni og æfingaálag hjá ungu íþróttafólki, ásamt því að skoða hvort tengsl séu þar á milli. Skoða hvort munur sé á meiðslatíðni og æfingaálagi á milli kynja annars vegar og íþróttagreina hinsvegar. Kanna hvert hlutfall álagseinkenna og bráðameiðsla er af heildarfjölda íþróttameiðsla. \nAðferðafræði: Tvennskonar spurningalistar voru lagðir fyrir framhaldsskólanemendur á afreksíþróttasviði haustið 2016. Annar þeirra var lagður fyrir nemendur einu sinnu og hinn alls fjórum sinnum yfir 8 vikna tímabil. Gögnum var safnað saman og flutt yfir í Excel og SAS Enterprice Guide 7.1 til úrvinnslu. Notuð voru eftirfarandi tölfræðipróf: Einþátta ANOVA, ANOVA Mixed Models, Logistical aðhvarfsgreining, Poisson aðhvarfsgreining og Generalized Linear Models. \nNiðurstöður: Marktækt minna æfingaálag og lægra meiðslahlutfall er í fótbolta miðað við handbolta og aðrar íþróttagreinar. Ekki er marktækur munur á æfingaálagi og meiðslatíðni milli kynjanna þrátt fyrir að stúlkurnar hafi í öllum tilvikum haft hærri meiðslatíðni. Álagseinkenni mældust marktækt fleiri en bráðameiðslin, bæði hjá stúlkum og drengjum. Ekki er fylgni milli aukins æfingaálags og hærri meiðslatíðni meðal ungs íþróttafólks. \nÁlyktanir: Þessi rannsókn var lítil og náði yfir stutt tímabil og það gæti hafa haft áhrif á niðurstöður. Því er þörf á stærri og yfirgripsmeiri rannsókn á þessu sviði hér á landi. Niðurstöður gefa þó innsýn í meiðslatíðni og æfingaálag hjá ungu íþróttafólki í mörgum mismunandi íþróttagreinum og þar með byggt grunn að fyrirbyggjandi aðgerðum.
Source: Skemman
Authors: Halldóra Huld Ingvarsdóttir 1988, Rakel Jóhannesdóttir 1992, Svandís Ösp Long 1992
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Social Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7006861073
