Vöðvastyrkur aftanlærisvöðva eftir endurgerð fremra krossbands með sin úr hálfsinungsvöðva. Samanburður á eccentrískri og ísómetrískri frammistöðu - áhrif tíma frá aðgerð
Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Inngangur: Slit á fremra krossbandi (e. anterior cruciate ligament (ACL)) eru alvarleg meiðsli sem hafa langvarandi áhrif á færni í hné. Ígræðsla á aftanlærissinunum við endurgerð ACL getur leitt til ósamhverfu og minnkuðum styrk í aftanlærisvöðvum. NordBord er mælitæki sem metur ísómetrískan styrk og vægi um hné ásamt samhverfu í aftanlærisvöðvum á meðan framkvæmd er Nordic hamstrings æfingin (NHæ). Tilgangurinn með þessari rannsókn var að mæla vægi um hné við ísómetrísk próf aftanlærisvöðva og NHæ hjá hópi íþróttakvenna með sögu um slit á ACL og endurgerð þess. Samhverfa milli skorna og óskorna fótarins var metin, sem og áhrif tíma frá aðgerð. Niðurstöður voru bornar saman við samanburðarhóp sem ekki hafði sögu um áverkann. \nAðferð: Þátttakendur voru 72 íþróttakonur, 49 í rannsóknarhópi sem höfðu sögu um ACL slit og endurgerð með vef úr hálfsinungsvöðva og 23 í samanburðarhópi, með enga sögu um ACL áverka. Rannsóknarhópnum var líka skipt upp í 3 hópa eftir tíma frá aðgerð. Framkvæmdar voru ísómetrískar og eccentrískar mælingar á NordBord. Niðurstöður voru yfirfærðar í Jamovi fyrir tölfræðiúrvinnslu. Marktektarmörk miðuðust við p<0,05. \nNiðurstöður: Tölfræðilega marktækur munur fannst á milli hópa (p<,001), þar sem samanburðarhópurinn var almennt með meira hámarksvægi. Einnig var tölfræðilega marktækur munur milli skorna og óskorna fótarins (p=0,002), þar sem óskorni fóturinn var almennt með meiri hámarksvægi. Tvívíð víxlhrif fyrir hóp og hlið (skorinn/óskorinn) (p<,001), sýndu ósamhverfu milli hliða sem var einungis til staðar hjá rannsóknarhópnum fyrir báðar mæliaðferðir. Tvívíð víxlhrif sýndu einnig að ósamhverfa milli hliða (skorinn/óskorinn) var meiri fyrir NHæ en ísómetríska mælingu (p=0,019) óháð tíma frá aðgerð. Fylgnipróf sýndi að heilt yfir var meðalsterk fylgni milli ísómetrískar mælingar og NHæ mælingar (skorinn (r=0,573), óskorinn (r=0,619)). Ekki reyndist vera marktækur munur á hópunum sem höfðu slitið ACL eftir tíma frá aðgerð. \nÁlyktun: Ósamhverfa milli hliða var meiri við NHæ mælingar heldur en ísómetrískrar mælingar hjá rannsóknarhópnum. Tölfræðileg niðurstaða fyrir rannsóknarhópinn gaf skýra niðurstöðu þess að mælingarnar eru að meta ólíka þætti í frammistöðu. Mikill munur er hjá rannsóknarhópnum við framkvæmd ísómetrískrar æfingar og NHæ, en áhrifin við að framkvæma tvíhliða (NHæ) hreyfingu sýnir mun minni samhverfu milli hliða samanborið við einhliða hreyfingu (ISO). Því er ekki hægt að áætla endurkomu í íþróttir einungis út frá ísómetrískum mælingum. Ekki var munur á vöðvastyrk eftir tíma frá aðgerð. Því er ekki hægt að áætla að lengri tími frá aðgerð skili sér í meiri samhverfu í vöðvastyrk milli hliða samanborið við styttri tíma frá aðgerð.
Source: Skemman
Author: Karen Tinna Demian 1998-
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Surgery
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7006891372
