Work

β-Glucan Transferases of Family GH17 from Proteobacteria

Year: 2010
Type: dissertation
Abstract: Ensím sem tilheyra fjölskyldu GH17 í flokkunarkerfi sykrurofsensíma voru rannsökuð úr þremur tegundum baktería: Methylobacillus flagellatus KT, Rhodopseudomonas palustris og Bradyrhizobium japonicum. Nýlegar rannsóknir hafa sýnt fram á að slík ensím úr Proteobakteríum sýna transferasa virkni, þ.e. þau klippa β-glúkan fjölsykrur og skeyta bútum á enda þega-sykra með myndun nýrra 1,3 tengja eða mynda greinar með β1,4 eða β1,6 tengjum. Gen ensímanna voru klónuð og tjáð í E. coli. Ensímin voru tjáð sem MalE samruna protein, en eftir framleiðslu og hreinsun var MalE hlutinn klipptur af með sérvirkum Ulp1 proteasa. Ensímin voru skilgreind með tilliti til virkni þeirra á laminarin fásykrur. Myndefni voru skilgreind með tilliti til stærðar og tengjagerðar með fjölbreyttri aðferðafræði, TLC, Maldi-TOF, electrospray og NMR. Niðurstöður rannsóknanna leiddu í ljós að tvö þessara ensíma, úr Rhodopseudomonas palustris og Methylobacillus flagellatus KT mynda β(1-3) tengi og eru því lengingarensím. Ensímið úr Bradyrhizobium japonicum sýndi β(1-6) transferasa virkni og er því greinamyndunar-ensím (branching). Unnt var að sýna fram á að ensímið klippir fjölsykrur frá afoxandi enda (reducing end) fjölsykruhvarfefnanna, öfugt við þau bakteríuensím sem hingað til hafa verið rannsökuð. Sá eiginleiki ætti að gera ensíminu úr Bradyrhizobium japonicum kleift að búa til fásykruhringi úr β-glúkan fjölsykrum.
Source: Skemman
Author: Jón Óskar Jónsson Wheat 1976
Language: Icelandic
Subfield: Biotechnology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7006933776
Cites: 42
Cited by:
Related to: 9