„Það er sko ekkert mál að detta, en það er að standa upp aftur“: Eigindleg rannsókn á reynslu eldri karla af endurteknum byltum
Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Inngangur: Byltur eru lýðheilsuvandi meðal eldri einstaklinga í heiminum þar sem einn af hverjum þremur sem náð hafa 65 ára aldri dettur a.m.k. einu sinni á ári og um helmingur þessa hóps dettur oftar. Sýnt hefur verið fram á hærri tíðni bylta meðal eldri kvenna en að því sögðu er dánartíðni í kjölfar bylta hærri hjá eldri körlum. Byltuvandi eldri karla er líklega nokkuð falinn þar sem þeir leita síður aðstoðar eða tjá sig um vandann við fagfólk. Markmið: Markmið rannsóknarinnar var að rannsaka reynslu eldri karla, sem búa heima, af endurteknum byltum. \nAðferðir: Rannsóknin byggði á hálfstöðluðum eigindlegum viðtölum þar sem stuðst var við fyrirbærafræði. Tekin voru níu viðtöl við jafnmarga karla, á aldrinum 71-84 ára, sem höfðu búsetu í heimahúsi og höfðu dottið a.m.k. tvisvar á 12 mánaða tímabili. Viðtölin voru kóðuð, þemagreind og greiningarlíkan sett fram. \nNiðurstöður: Niðurstöður gáfu til kynna margþætta reynslu eldri karla af endurteknum byltum þar sem þó mátti greina ákveðin líkindi þegar frásagnir voru bornar saman. Fimm eftirfarandi yfirþemu komu fram: byltusaga, afleiðingar bylta, sjúkraþjálfun eftir byltur, stuðningur aðstandenda og nærumhverfis og einstaklingurinn. Þá hafði hvert þessara þema nokkur undirþemu. Greiningarlíkanið endurspeglaði þá þætti sem tengdust byltureynslu eldri karla. Líkamlegar afleiðingar höfðu ekki háð mörgum þátttakendum en aðra sögu var að segja hvað andlegar og félagslegar afleiðingar varðaði. Vanmáttarkennd, niðurlæging og neikvæðar hugsanir höfðu haft mikil áhrif á meirihluta þátttakenda. \nÁlyktanir: Niðurstöðurnar gefa til kynna að auka þurfi umræðu, fræðslu og sýnileika þegar að byltuvanda eldri karla kemur. Niðurstöðurnar munu hjálpa sjúkraþjálfurum og öðru heilbrigðisstarfsfólki að skilja hvað gerist í lífi eldri einstaklinga sem detta endurtekið og um leið auka skilvirkni og árangur meðferða eftir byltur. Þörf er á eigindlegum rannsóknum á þessu sviði þar sem eldri karlar virðast eiga erfitt með að deila sinni reynslu séu þeir ekki spurðir að fyrra bragði.
Source: Skemman
Author: Lilja Dögg Erlingsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7006936483
