Þá breyttist ekki margt heldur allt: Upplifun flugliða af eyðileggjandi forystu á vinnustað
Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Í þessari rannsókn var leitast við að draga fram upplifun viðmælanda af eyðileggjandi forystu á vinnustað. Tekin voru viðtöl við tíu viðmælendur sem allir voru fastráðnir og höfðu starfað hjá sama fyrirtækinu frá byrjun eða fyrstu árum þess frá því það var stofnað. Upplifun viðmælenda er dregin fram og eru helstu hvatar og áskoranir einnig gerð skil. Gögnum var safnað með hálfopnum djúpviðtölum. Viðtalsrammi var hafður til hliðsjónar og var honum breytt eftir því sem ástæður og efni stóð til í hverju viðtali fyrir sig. Unnið var úr gögnun viðtalanna samkvæmt þremur stigum fyrirbærafræðinnar en þau eru lýsing, samþætting og túlkun. \nHelstu niðurstöður eru þær að viðmælendur upplifðu eyðileggjandi leiðtogahegðun og að þær aðstæður sem sköpuðust á vinnustaðnum meðal viðmælanda hafi einkennst af tilfinningu um starfsóöryggi, hræðslu og þöggun um að tjá ónægju sína varðandi starfsumhverfi og stjórnun. Mikið álag skapaðist í starfi viðmælanda, baktal meðal starfsfólks myndaðist og að ósamstaða meðal þeirra var einnig til staðar.
Source: Skemman
Author: Guðrún Halldóra Jónsdóttir 1970
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7007010423
