Work

„Þetta er grunnskólamálfræði. Þetta eru villur sem eiga ekki að sjást í háskóla.“: Hvaða hlutverki gegna viðhorf og stuðningur í tvítyngdri máltöku?

Year: 2021
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Í kjölfar samfélags- og tæknibreytinga hafa vaknað spurningar um stöðu og framtíð íslenskunnar en um hana eru skiptar skoðanir. Meðal landsmanna hefur mikil áhersla verið lögð á að varðveita tungumálið en samt sem áður eiga um þriðjungur 13–15 ára ungmenna það til að tala stundum saman á ensku fremur en íslensku. Hlutfall tvítyngdra barna á Íslandi hefur hækkað hratt og mun líklega halda áfram að aukast á næstu árum, en 13,7% allra leikskólabarna og 11,5% allra grunnskólabarna eru með annað móðurmál en íslensku. \nMeð aukningu íbúa af erlendum uppruna á Íslandi alast æ fleiri börn upp í tví- og fjöltyngdu málumhverfi. Til að tryggja málhæfni þeirra þarf m.a. að horfa til félagslegra þátta sem hafa áhrif á máltöku tvítyngdra barna. Í þessari ritgerð verður leitast við að skoða hvaða áhrif samfélagsleg viðhorf til málfærni tvítyngdra Íslendinga hafa á máltöku eða máltileinkun þeirra. Einnig verður horft til samfélagslegs stuðnings og áhrifa menntunar á máltöku þessa hóps. \nRitgerðin samanstendur af fræðilegum hluta og viðhorfskönnun sem lögð var fyrir tvo hópa. Í fyrri hópnum voru ungar tvítyngdar konur með íslensku sem móðurmál eða annað mál og í seinni hópnum voru framhaldsskólanemar sem voru að læra íslensku sem annað mál. Markmið könnunarinnar var að varpa ljósi á áhrif athugasemda við málfar á sjálfsmynd og viðhorf tví-og fjöltyngdra einstaklinga til íslensku. Tekið skal fram að ætlunin var ekki að safna tölfræðilega marktækum gögnum heldur einungis lýsandi gögnum.
Source: Skemman
Author: Lísa Mikaela Gunnarsdóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7007017720
Cites: 15
Cited by:
Related to: 10