Work

Áhrif snjalltækja á andlega heilsu barna

Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Síðan snjalltækin komu á markað hefur skjáhorf aukist verulega og ekki aðeins á meðal fulloðnum heldur einnig á meðal yngstu barnanna. Áhyggjur varðandi þessa aukningu virðist vera í samfélaginu en ekki hafa langtíma áhrif snjalltækja verið rannsökuð að fullu, en skammtíma áhrif þess virðast nægar til þess að vekja upp áhyggjur. Í þessari ritgerð verður fjallað um áhrif snjalltækja á andlega heilsu barna og verður farið yfir áhrif þess á þroskaþætti barna, þá vitsmunaþroska og félagsþroska. einnig verður farið út í hegðu, tilfinningar, svefn og mikilvægi leiks og hvernig skjáhorf getur haft áhrif á andlega heilsu barna út frá þessum þáttum. Það er ráðlagt að börn horfi ekki á meira en eina klukkustund á dag en niðurstöður benda til þess að það virðist erfitt að halda í það markmið og er orðið algengara að börn horfi á skjá í tvo klukkutíma og jafnvel lengur. Notkun í óhófi getur haft neikvæð áhrif á þroska og líðan barna, og einnig notkun foreldra. Það getur truflað leik barna og samband á milli foreldra og barns ef skjárinn fær meiri athygli en persónuleg samskipti. Foreldrar þurfa því að öðlast sjálfir færni á netinu og vera góðar fyrirmyndir barna sinna. \nLykilhugtök: Snjalltæki, andleg heilsa, skjáhorf, foreldrar
Source: Skemman
Author: Eydís Ösp Þorsteinsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7007595948
Cites: 48
Cited by:
Related to: 10