Year: 2013
Type: dissertation
Abstract: Aukning hefur verið á notkun áfengis hér á landi eins og öðrum vesturlöndum, en samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni(WHO) er notkun áfengis þriðji stærsti áhættuþáttur slæmrar heilsu einstaklinga á heimsvísu. Sumir sem neyta áfengis þróa með sér sjúkdóminn alkóhólisma en hann er talin hafa afdrifarík áhrif á einstaklinginn sjálfan, auk nánustu fjölskyldu hans. \nTilgangur þessarar fræðilegu úttektar var að skoða hvort og hvaða áhrif það getur haft á börn og unglinga að alast upp við alkóhólisma. Úrræði fyrir börn alkóhólista voru skoðuð hérlendis og annars staðar. Einnig var skoðað hvað hjúkrunarfræðingar geta gert til að leggja þessum börnum lið. \nNiðurstöður samanburðarannsókna á börnum alkóhólista sýna aukna hættu á vandamálum tengdum þroska, námsgetu, hegðun, tilfinningalegum og andlegum þáttum. Þau geta átt erfiðara með að tengjast sterkum vinaböndum og síðar meir að stofna til ástarsambanda. Einnig eru þau talin eigi erfiðara með að þróa með sér sjálfstjórn en fylgni er talin vera milli góðrar sjálfstjórnar og jákvæðs þroska. Sum börn virðast þróa með sér vissa seiglu til að takast á við aukið álag án þess að brotna undan. Það á ekki við öll börn og er því nausynlegt að bregðast við snemma og hjálpa þeim að mynda með sér einhverskonar vörn gegn hættunni. \nLykilorð: Alkóhólismi, alkóhólisti, börn, þroski, seigla.
Source: Skemman
Author: Kristín María Þórðardóttir 1989
Language: Icelandic
Subfield: Epidemiology
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7007662295
