Work

Áfengismenning nær og fjær. Er munur milli menningarsvæða á drykkju áfengis?

Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Áfengi hefur ávallt fylgt mannkyninu, frá því við vorum einföld bændasamfélög til dagsinns í dag. Þessi neysluvara hefur verið hluti af okkar lífi svo lengi að það hefur myndast ákveðin menning í kringum vín eða með öðrum orðum vínmenning sem er mismunandi eftir þjóðum og landsvæðum. Spyrja má af hverju manneskjan hefur verið svona hrifin af þessum drykk í gegnum aldinar og raun ber vitni. Í ritgerðinni er vínmenningin skoðuð út frá mannfræðilegu sjónarhorni og í því skyni er notast við fræðilegar umfjallanir um áfengi og vínmenningu og þá einkum hugmyndir um hugtökin menningu og hnattvæðingu. Leitast er við að svara hvort áfengismennig sé raunverulegt fyrirbæri og hvort munur sé á milli menninga þegar kemur að meðhöndlun áfengis. Farið er stuttlega yfir söguna á bakvið áfengi og mismunandi vínmenningu eftir löndum; til dæmis Frakkland, Danmörk og Bandaríkin. Einnig er sjónum beint að Íslandi og skoðað hvort að áfengismennig hafi breyst eða sé að breytast hér á landi. Það er ákveðinn munur á milli landsvæða og menninga þegar kemur að áfengi, hvort svo sem það er meðhöndlað sem hluti af daglegu lífi eða sem efni til þess eins að verða ölvaður um helgar. Helstu niðurstöður eru þær að léttvíns-menning er að verða útbreiddari á kostnað sterkvínsmenningar og þá einkum fyrir tilstilli hnattvæðingar.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Subfield: Epidemiology
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7007667161
Cites: 17
Cited by:
Related to: 10