Áhrif þreytu á liðferla og vöðvavirkni í hreyfingunni að setjast niður og standa upp
Year: 2011
Type: dissertation
Abstract: Markmið: Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort að breyting verður á hreyfiferlum og rafvirkni vöðva við þreytu, í hreyfingunni að setjast niður og standa upp. \n \nAðferðir: Einn þáttakandi var mældur í rannsókninni, 25 ára gömul kona. Við rannsóknina var notaður kollur sem var það lágur að þegar þátttakandi sat voru hnén í u.þ.b. 90°. Þátttakandi var berfættur meðan á æfingunni stóð og var með auka þyngd á öxlum til að flýta fyrir áhrifum þreytu. Þátttakandi stóð og settist, nánast til skiptis með um 3 s fresti og stóð æfingin yfir í 13 mín og 12 s. Notaðar voru Oqus myndavélar frá Qualysis til að taka upp hreyfingu þátttakandans í 10 s á mínútu fresti á meðan á æfingunni stóð. Hugbúnaðurinn var einnig frá Qualysis, Qualisys Track Manager. Þátttakandinn stóð á kraftplötum frá AMTI sem mældu kraftinn frá fótunum í hreyfingunni. Yfirborðsvöðvarafrit (sEMG) frá KinePro var fest á þátttakanda og mæld var rafvirkni þriggja vöðva, beina lærvöðva (m. rectus femoris), hliðlæga víðfaðmavöðva (m. vastus lateralis), miðlæga víðfaðmavöðva (m. vastus medialis) vinstri og hægri fótar. Upptaka gagna var samhæfð á milli Kine og Qualisys tækjanna. Fyrstu tvær og seinustu tvær mælingarnar frá Qualysis myndavélunum og yfirborðsvöðvarafritinu voru notaðar til frekari úrvinnslu. Meðaltal tveggja fyrstu mælinganna var litið á sem óþreytt ástand og meðaltal tveggja seinustu mælinganna var litið á sem þreytt ástand. \n \nNiðurstöður: Í öllum hornamælingunum sjást meiri frávik frá meðaltali við þreytt ástand. Lítill munur er á mælingum krafta við óþreytt og þreytt ástand. Mestu breytingar á vöðvarafriti var að heildarorka jókst fyrir alla vöðvana sem mældir voru. Lítil breyting varð á meðalorkutíðni vöðvanna en hún jókst þó aðeins fyrir flesta vöðvana. \n \nÁlyktun: Frávik frá meðaltali fyrir hornamælingarnar aukast við þreytu sem bendir til minni stjórnunar þátttakandans á hreyfingunni. Heildarorka vöðvanna sem skráð var frá jókst, sem gæti stafað af því að vöðvarnir voru farnir að þreytast og þurfi því meiri rafvirkni til að mynda sama kraftinn. Meðalorkutíðni vöðvarafrits (EMG) bendir þó til að ekki hafi verið komin þreyta í þá vöðva sem mældir voru. Líkleg skýring er því að vöðvarnir sem liggja dýpra hafi verið farnir að þreytast og það skilað sér í auknu álagi á vöðvana sem mældir voru.
Source: Skemman
Author: Heiðrún Ósk Eymundsdóttir 1985
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Biomedical Engineering
Field: Engineering
Domain: Physical Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7007736439
