Work

Álagið var gríðarlegt : val foreldra á kennsluaðferð fyrir börn á einhverfurófi í leikskólum

Year: 2012
Type: dissertation
Abstract: Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á reynslu foreldra þegar kemur að vali á kennsluaðferð í leikskóla fyrir börn á einhverfurófi. Skoðað var í hverju stuðningur og ráðgjöf við valið var fólgin. Að auki var skoðað hvernig eftirfylgni og ráðgjöf var háttað eftir að kennsluaðferð var valin. \nVið vinnu rannsóknarinnar var notuð eigindleg rannsóknaraðferð þar sem hálf- opnum viðtölum var beitt. Viðtöl voru tekin við níu einstaklinga, foreldra fimm barna sem unnu eftir kennsluaðferðunum Skipulögð kennsla og Atferlisþjálfun, tvo ráðgjafa frá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins sem veita ráðgjöf vegna beggja aðferðanna og tvo sérkennsluráðgjafa sveitar¬félaga sem veita ráðgjöf úti í leikskólum í sitt hvoru bæjarfélaginu. \nNiðurstöður rannsóknarinnar sýna að til viðbótar við þá erfiðleika sem fylgja því að eiga barn á einhverfurófi, voru aðrir þættir íþyngjandi. Foreldrarnir voru ósáttir við biðtíma á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, fannst erfitt að velja kennsluaðferð og hefðu viljað fá meiri ráðgjöf við það val. Foreldrum fannst einnig lítil ráðgjöf vera veitt eftir að búið var að velja kennsluaðferð og byrjað var að vinna með börnunum í leikskólunum. Ráðgjafarnir töldu sig þó veita góða ráðgjöf og gera það sem þeir gætu fyrir foreldra. Niðurstöðurnar benda því til þess að endurskoða þurfi þá ráðgjöf sem foreldrum er veitt þegar börn greinast á einhverfurófi. \nRannsakandi vonast til að hægt sé að draga lærdóm af þessum niðurstöðum. Að fagfólk, bæði á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins og í sveitar¬félögunum geti nýtt sér niðurstöðurnar, séð það misræmi sem gætir í upplifun þeirra og foreldranna til að hægt sé að brúa það bil með einhverjum hætti.
Source: Skemman
Author: Ólöf Kristín Guðmundsdóttir 1959
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7007739426
Cites: 27
Cited by: 2
Related to: 10