Work

Áhrif hreyfingar á einkenni kæfisvefns : slembuð samanburðarrannsókn

Year: 2024
Type: dissertation
Study design: Clinical Trial
Abstract: Markmið: Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvort 12 vikna æfingaáætlun dragi úr einkennum kæfisvefns og hafi áhrif á líkamssamsetningu og líkamlegt atgervi einstaklinga með mildan til miðlungs kæfisvefn. Aðferð: Alls voru þátttakendur í rannsókninni 30 talsins (aldur 35.75 ± 3.80, BMI 33.7±3.7, karlar %) sem uppfylltu skilyrði forrannsóknar fyrir þátttöku í rannsókninni. Þátttakendum var skipt með slembi aðferð í æfingahóp (N=11) og samanburðarhóp (N=19). Framkvæmdar voru þriggja nátta svefnmælingar (einkenni kæfisvefns (AHI)), líkamsmælingar (hæð, þyngd, líkamsþyngdarstuðull (BMI), og ummálsmælingar á hálsi, mitti og mjöðmum) líkamssamsetningar mælingar (fituhlutfall, fitumassi, vöðvahlutfall, vöðvamssi, innri fita) og mælingar á líkamlegu atgervi (gripstyrkur og 6-mínútna göngupróf), hjá öllum þátttakendum fyrir og eftir inngrip. Niðurstöður: Marktækur munur fannst á AHI (p=0.003) milli fyrri og seinni mælinga hjá þátttakendum í æfingahópnum. Marktækur munur fannst á hálsummáli (p=0.043), vöðvahlutfalli (%) (p=0.050) og innri fitu (p=0.006) hjá æfingahópnum. Auk þess sem marktækur munur fannst milli mælinga á 6-mínútna gönguprófi (p=0.018) hjá æfingahópnum. Marktækur munur fannst milli mælinga á gripstyrk (p=0.049) þátttakenda í samanburðarhóp. Umræður: Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að 12 vikna þjálfunaráætlunin dró úr einkennum kæfisvefns, minnkaði hálsummál, jók vöðvahlutfall (%) og minnkaði innri fitu hjá þátttakendum í æfingahópnum. Einnig varð marktæk bæting á þoli þátttakenda í æfingahóp.
Source: Skemman
Author: Kristín Heiða Ingvadóttir
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7007803326
Cites: 123
Cited by:
Related to: 10