Afstaða íslenskra millistjórnenda til mikilvægis hvatningarþátta
Year: 2014
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Hvatning er eitt af mest rannsökuðu hugtökum mannauðsstjórnunar og einnig eitt þeirra hugtaka sem er hvað erfiðast að skilja. Oft á tíðum vefst fyrir stjórnendum hvernig best sé að hvetja starfsfólk sitt áfram. \nMarkmið þessarar rannsóknar er að kanna hvaða þætti hvatningar millistjórnendur telja mikilvægasta og hvort munur sé á afstöðu stjórnenda til hvatningar eftir menntun, aldri, kyni eða menntun undirmanna. Til að ákvarða hvaða atriði hvatningar yrðu mæld var gerð forrannsókn, í henni voru tekin viðtöl við fjóra millistjórnendur í fjórum mismunandi fyrirtækjum og þeir beðnir að segja hvaða þætti þeir teldu mikilvægasta varðandi hvatningu. Út frá þessum þáttum var búinn til spurningalisti sem lagður var fyrir stærra úrtak, stuðst var við hentugleikaúrtak í þessu verkefni. Rafrænn spurningalisti var lagður fyrir millistjórnendur í um þrjátíu fyrirtækjum og voru þátttakendur 91 talsins. \nRannsóknarspurning verkefnisins var: Hvaða þætti telja millistjórnendur að séu mikilvægastir varðandi hvatningu? Þar að auki voru eftirfarandi undirspurningar settar fram: Er munur á afstöðu eftir kyni, aldri eða menntun stjórnenda? Er munur á afstöðu eftir menntunarstigi undirmanna? Niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að þrír mikilvægustu þættir hvatningar, að mati millistjórnenda, voru að hrósa starfsfólki þegar það stendur sig vel, að hafa góðan starfsanda í vinnunni og að hafa góða og þægilega vinnuaðstöðu. Þar auki voru niðurstöðurnar þær að ekki reyndist marktækur munur á afstöðu millistjórnenda til hvatningar eftir kyni, aldri, menntunarstigi undirmanna eða menntun millistjórnenda.
Source: Skemman
Author: Sigríður Þóra Jafetsdóttir 1991
Institution: Reykjavík University
Language: Icelandic
Domain: Social Sciences
Keywords: leadership, managerial attitudes, employee motivation, gender differences, age differences, human resource management, organizational behavior, employee retention, employee turnover, employee commitment, employee engagement, employee recognition, employee incentives, employee feedback, employee training, employee development
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7007805957
