Work

Áföll í æsku og afbrotahegðun kvenna: Hvernig er hægt að mæta þörfum þeirra?

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Viðfangsefni ritgerðarinnar er að fjalla um áhrif áfalla í æsku og afbrotahegðun kvenna. Meginmarkmið ritgerðarinnar er að skoða hver áhrifin eru á konur sem verða fyrir áföllum í æsku og hvernig áföllin geta verið valdur af því hvaða leið þær fara í lífinu. Áföll hafa skaðleg áhrif á hvern sem verður fyrir þeim. Að hafa orðið fyrir hvers kyns áfalli í æsku er veruleiki margra kvenna í heiminum. Rannsóknir hafa sýnt fram á að konur eru almennt líklegri til að hafa orðið fyrir skaðlegri upplifun í æsku (ACE). Rannsóknir hafa einnig sýnt fram á að áföll og skaðlegar upplifanir í æsku geta spilað stóran þátt í því hvaða leið þær feta í lífinu. Mikilvægt er því að stuðla að því að konur fái hjálp við að vinna úr áföllum sínum til að sporna við því að þær leiðist út í afbrot. Algengt er að konur komi inn í refsiréttarkerfið með ómeðhöndluð vandamál sem þær þurfa aðstoð við að vinna bug á. Innan fangelsiskerfisins eru konur viðkvæmur hópur vegna kyns, þar sem fangelsin eru ekki sniðin að þörfum þeirra. Stór hluti þeirra eru þolendur áfalla og með fjölþættan vanda á borð við áfallastreituröskun og áfengis- og/eða vímuefna vandamál. Þar af leiðandi er þörf fyrir því að mæta þeim þar sem þær eru staddar og stuðla að því að veita þeim þá aðstoð sem þörf er á að hverju sinni þegar þær koma inn í fangelsiskerfið. Ef aðstoðin er sniðin að þeirra þörfum og tekið er mið af ólíkum vandamálum kynjanna, er hægt að vinna að rót vandans sem skilar sér í minnkandi tíðni afbrota og stuðla að því að þær geti orðið virkir þegnar samfélagsins. Félagsráðgjafar geta gegnt mikilvægu hlutverki í að aðstoða konur sem hafa orðið fyrir áföllum og leiðst út í afbrot vegna þekkingar þeirra á ýmsum sviðum. Þó er mikilvægt að þverfaglegt samstarf fari fram á milli þjónustugeira til þess að hægt sé vinna með vandamál kvenna á heildstæðan hátt og vinna bug á orsökum afbrotahegðunar þeirra.
Source: Skemman
Author: Sunneva Líf Sindradóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Keyword: women
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7007815824
Cites: 58
Cited by:
Related to: 10