Work

Áhrif áfalla og ofbeldis í æsku á áfengis- og vímuefnavanda á fullorðinsárum

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Ár bernsku- og uppvaxtar ættu að vera sá tími ævinnar þegar sakleysi barns og áhyggjuleysi er ríkjandi. Þessi mótunarár eru of oft merkt hinu gagnstæða. Þetta mikilvæga þroskaskeið breytist þá í andhverfu sína, þar sem sakleysið hefur verið tekið frá barninu. Í ritgerðinni verður fjallað um áföll og ofbeldi í æsku og áhrif þeirra á áfengis- og vímuefnavanda á fullorðinsárum. Kenningarnar, sem liggja til grundvallar, eru um geðtengsl, áfallakenningar og kenningar um áfengissýki. Fræðileg umfjöllun ritgerðarinnar beinist að rannsóknum sem hafa verið gerðar á samtvinnun áfalla í æsku og vímuefnavanda síðar á ævinni. Rannsóknarspurningu sem leitast er eftir að svara er: “Hafa áföll og ofbeldi í æsku áhrif á áfengis- og vímuefnaröskun og hvaða verndandi þættir geta komið í veg fyrir þessa þróun?” \nNiðurstöður ritgerðarinnar gefa til kynna að einstaklingar sem þola áföll í æsku glíma oft við byrðina af óuppgerðum tilfinningum, sjálfsefa og djúpum sársauka. Áfengi og fíkniefni geta veitt tímabundinn flótta frá áleitnum minningum fortíðarinnar og tilfinningalegu umróti. Hins vegar dugir þessi huggun í skamman tíma og getur dregið einstaklinginn inn í vítahring fíkna. Ferðalag sem býður í fyrstu upp á flótta frá erfiðum tilfinningum en festir síðan einstaklinginn í hringrás, sem eykur tilfinningalega vanlíðan þeirra. Til þess að koma í veg fyrir neikvæðar afleiðingar þarf snemmtæka íhlutun og einstaklingsmiðaða meðferðir til að vinna bæði úr vímuefnavandanum og fyrrum áföllum.
Source: Skemman
Author: Marín Ösp Ómarsdóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7007934504
Cites: 55
Cited by:
Related to: 10