Áhrif stjórnendaþjálfunar Dale Carnegie á markmiðasetningu og hvatningu leiðtoga innan skipulagsheilda
Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Markmið ritgerðarinnar var að kanna hvort stjórnendur væru meðvitaðri um að nýta sér markmiðasetningu og hvatningu eftir að hafa lokið stjórnendaþjálfun Dale Carnegie og ef svo væri hvaða áhrif það hefði fyrir viðkomandi skipulagsheild. Leitað var svara við eftirfarandi rannsóknarspurningu: Hvaða áhrif hefur stjórnendaþjálfun Dale Carnegie á markmiðasetningu og hvatningu leiðtoga innan skipulagsheilda? Til þess að svara rannsóknaspurningunni var gerð eigindleg rannsókn. Tekin voru átta viðtöl við stjórnendur sem höfðu útskrifast af stjórnendaþjálfun Dale Carnegie og störfuðu annarsvegar í einkareknum- og hinsvegar ríkisreknum skipulagsheildum. Niðurstöðurnar leiddu í ljós að stjórnendaþjálfun Dale Carnegie hafði áhrif á bæði markmiðasetningu og hvatningu leiðtoga innan skipulagsheilda. Námskeiðið hjálpaði viðmælendum að þróa og bæta leiðtogahæfni sína. Viðmælendur urðu meðvitaðri um hvernig þeir setja sér árangursrík markmið eftir námskeiðið. Þeir brutu markmiðin frekar niður í smærri viðráðanlegri verkefni sem varð til þess að þeir upplifðu aukna hvatningu í starfi. Námskeiðið hafði einnig þau áhrif að viðmælendur urðu meðvitaðri um að hvatning væri gott stjórntæki sem hefur góð áhrif á frammistöðu starfsmanna og skilar skipulagsheildinni auknum árangri.
Source: Skemman
Author: Anna María Axelsdóttir 1988
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Strategy and Management
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7007979145
