„Að taka við keflinu“. Upplifun náms- og starfsráðgjafa í framhaldsskólum af aðkomu sinni við vinnslu kynferðisofbeldismála
Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Markmið rannsóknarinnar var að öðlast innsýn í upplifun náms- og starfsráðgjafa í framhaldsskólum af aðkomu þeirra við vinnslu kynferðisofbeldismála. Kanna hvernig þeir upplifa sitt hlutverk í slíkum málum og hvaða áskoranir verða á vegi þeirra varðandi þennan málaflokk. Eins að kanna hver upplifun þeirra er af þeim viðbragðsáætlunum sem skólar hafa sett sér er varða kynferðisofbeldi. Rannsóknin var framkvæmd með eigindlegri rannsóknaraðferð og voru viðtöl tekin við átta náms- og starfsráðgjafa sem starfa innan framhaldsskólanna. Helstu niðurstöður gefa til kynna að þeir náms- og starfsráðgjafar sem rætt var við gegna veigamiklu hlutverki við vinnslu kynferðisofbeldismála innan framhaldsskólanna. Þeir leggja sig fram við að sýna þeim nemendum sem að slíkum málum koma virðingu og samkennd, styðja þá og starfa sem talsmenn bæði þolenda og meintra gerenda innan skólanna og gæta að hagsmunum beggja. Þeir taka við keflinu, koma málunum í réttan farveg og finna hentug úrræði. Niðurstöður sýndu að það er viðmælendum mikilvægt að starfa innan síns starfssviðs en vegna skorts á úrræðum og ýmissa áskoranna sem á vegi þeirra verða við vinnslu kynferðisofbeldismála þá upplifa þeir sig nauðbeygða til að starfa fyrir utan sitt starfssvið til að stuðla megi að farsæld og áframhaldandi skólagöngu þeirra nemanda sem að málunum koma. Af niðurstöðum má ætla að enn sé vinna fram undan hjá framhaldsskólum og stjórnvöldum til að bregðast við þeim vanda sem kynferðisofbeldi innan framhaldsskólanna er. Skilgreina þarf betur störf náms- og starfsráðgjafa og það hlutverk sem þeir gegna við vinnslu kynferðisofbeldismála. Ásamt því að skýra þarf lagaramma og endurskoða viðbragðsáætlanir svo hægt verði að bjóða uppá raunveruleg úrræði sem tryggja farsæld bæði þolenda og ungra gerenda. Vonast er til að þessar niðurstöður verði gagnlegar við mótun verkferla og stefnumörkun stjórnvalda er varða kynferðisofbeldismál innan framhaldsskólanna.
Source: Skemman
Author: Fríður Hilda Hafsteinsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Child Abuse and Trauma
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7008073327
