Árangursstjórnun í háskólum á Íslandi - Hvernig nýtist aðferðafræði árangursstjórnunar í opinberu háskólunum?
Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Ritgerðin fjallar um innleiðingu nýskipunar í ríkisrekstri (e. new public management) á Íslandi, sögu háskólastarfs í Evrópu og upphaf háskólastarfs á Íslandi. Í ritgerðinni er fjallað um áhrif árangursstjórnunar hjá hinu opinbera og á háskólastarf í Evrópu. Rannsóknin beinist að opinberu háskólunum á Íslandi, en þeir eru fjórir; Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Hólum, Háskóli Íslands og Landbúnaðarháskóli Íslands. Heyra þeir allir undir lög um opinbera háskóla nr. 85/2008. \nViðtöl voru tekin við sjö stjórnendur hjá opinberu háskólunum um innleiðingu og áhrif árangursstjórnunar í þeirra stofnun. Opinberu háskólarnir nýta sér aðferðir í tengslum við stefnumótun og eftirfylgni en matskerfi opinberra háskóla er mest notaða og þekktasta \nárangursstjórnunarkerfið hjá háskólunum. \nHelstu niðurstöður eru að innleiðing á árangursstjórnun í tengslum við stefnumótun er komin mislangt á veg í háskólunum, en stjórnendur eru almennt jákvæðir gagnvart árangursstjórnun í tengslum við almenna stefnumótun, þó minni háskólarnir hafi lítið bolmagn til að sinna árangursmati og fylgja því eftir. Matskerfi opinberra háskóla þykir \nhingað til hafa skilað árangri hvað varðar rannsóknarvirkni. Kerfið er engu að síður umdeilt, helst fyrir mikla áherslu á rannsóknarhlutann og skort á vægi kennslu, en ljóst er að mælikvarða á gæði kennslu skortir í matskerfið og framlag til þjóðfélagsumræðu er lítt metið \ní kerfinu. Það er sömuleiðis á skjön við stefnur háskólanna um tengsl við samfélagið.
Source: Skemman
Author: Rebekka Silvía Ragnarsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7008074850
