Work

Bálkakeðjur og snjallsamningar: Áhrif þeirra á viðskiptakostnað, skipulag og dreifðstýrð fjármál

Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Bálkakeðjur og snjallsamningar sem keyra á þeim munu á komandi árum, miðað við helstu spár, umbylta því hvernig skipulagi alls kyns viðskipta og verkferla er háttað innan fjölda atvinnugreina um heim allan. Þetta má að miklu leyti rekja til þeirrar staðreyndar að bálkakeðjur geta við réttar aðstæður falið í sér töluvert minni viðskiptakostnað en aðrar hefðbundnar lausnir og verið þannig hagkvæmari fyrir viðskipti en önnur skipulagsform. \nNiðurstaða sem er engan veginn sjálfgefin og þá sérstaklega ekki ef að litið er til tilraunastigs nútíma bálkakeðja enda þær töluvert fjarri þeirri byltingu sem bálkakeðjur eiga síðar að valda. Það að í almennri umræðu ríki víðdreifð óvissa þegar að kemur að bálkakeðjum kemur þar afleiðandi ekkert sérstaklega á óvart en er einnig eitthvað sem má bæta úr. Þess vegna er að hluta til markmið þessarar ritgerðar að varpa ljósi á hvað bálkakeðjur í raun eru og að útskýra hvernig traustlaus viðskipti á bálkakeðju án milliliða stuðla að lægri viðskiptakostnaði. Umfjöllunin er samt ekki takmörkuð við bálkakeðjur heldur eru snjallsamningar og dreifstýrð fjármál einnig tekin sérstaklega fyrir. \nSnjallsamningar vegna þess að það er samþætting þeirra við bálkakeðjur sem gerir áhrifasvið bálkakeðjutækninnar jafn víðtækt og það virðist vera. Spila þeir þar að auki lykilhlutverk í lágmörkun viðskiptakostnaðar á bálkakeðju þar sem þeir draga úr tækifærismennsku í viðskiptum og kostnaðinum sem fer í að verjast slíkri hegðun. Þessi viðskiptakostnaðaráhrif eru að lokum sett í samhengi við bæði sögulegt leiðtogahlutverk fjármálageirans hvað þróun bálkakeðjulausna varðar og nýlegan uppgang dreifstýrða fjármálakerfisins. Þróun sem veitir mögulega smá innsýn í það sem bálkakeðjutæknin hefur upp á að bjóða og framtíðar byltinguna sem hún mun líklega valda.
Source: Skemman
Author: Rúnar Guðjónsson
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7008091062
Cites: 29
Cited by:
Related to: 10