Afleiðingar kynferðisofbeldis; Alvarleiki, tengsl við geranda, tímalengd, tíðni, aldur og kyn þolenda
Year: 2014
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Meginmarkmið rannsóknarinnar var að kanna hvort alvarleiki kynferðisofbeldis, tengsl við geranda, tímalengd ofbeldis og aldur þolenda þegar ofbeldið átti sér stað hefði áhrif á þær afleiðingar sem þolendur glímdu við. Einnig að kanna hvort kynin upplifðu ólíkar afleiðingar af kynferðisofbeldi. Rannsóknin var megindleg og var notast við lýsandi tölfræði á fyrirliggjandi gögnum við framkvæmd hennar. Gögn úr komuskýrslum Stígamóta frá árunum 2011 til 2013 voru notuð og unnið var úr þeim í tölfræðiforritinu SPSS. \nHelstu niðurstöður rannsóknarinnar voru að hlutfall þeirra sem orðið höfðu fyrir grófu kynferðisofbeldi og í kjölfar þess upplifað a) kvíða, b) ótta, c) reiði, d) skömm, e) depurð, f) sektarkennd og g) lélega sjálfsmynd var hærra en hlutfall þeirra sem höfðu orðið fyrir vægara kynferðisofbeldi. Algengara var að þeir þolendur kynferðisofbeldis sem þekktu geranda sinn upplifðu sálrænar afleiðingar ofbeldisins en þeir sem urðu fyrir kynferðisofbeldi af hendi ókunnugra. Hærra hlutfall þolenda sem varð fyrir kynferðisofbeldi í lengri tíma glímdi við afleiðingar en þolendur sem urðu fyrir ofbeldi í styttri tíma og þolendur sem voru yngri en 18 ára þegar kynferðisofbeldið hófst greindu oftar frá erfiðleikum í tengslum sínum við maka og/eða vini og sjálfsvígshugleiðingum heldur en þeir sem voru eldri þegar ofbeldið byrjaði. \nLykilorð: Kynferðisofbeldi, kynferðisleg misnotkun, sifjaspell, nauðgun, afleiðingar kynferðisofbeldis, Stígamót.
Source: Skemman
Author: Særún Ómarsdóttir 1987
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Child Abuse and Trauma
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7008091858
