Work

Athugun á tíðni og einkennum sérkennilegrar og áráttukenndrar hegðunar meðal barna með röskun á einhverfurófi í ljósi nýrrar skilgreiningar á einhverfu í DSM-5

Year: 2013
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Endurskoðun stendur yfir á DSM-IV greiningarkerfinu og samkvæmt drögum að greiningarviðmiðum fyrir einhverfu er ljóst að umtalsverð breyting verður á skilgreiningu, flokkun og greiningu. Nýlegar rannsóknarniðurstöður benda til að ríkari krafa um sérkennilega og áráttukennda hegðun í greiningarviðmiðum DSM-5 muni fækka þeim sem greinast með einhverfurófsröskun. Markmið rannsóknarinnar var að athuga hvort hegðun og þroskasaga barna, sem hafa greinst með röskun á einhverfurófi með hliðsjón af greiningarmörkum ICD-10, uppfylli hin nýju DSM-5 greiningarviðmið við fyrstu athugun og endurmat. Jafnframt var skoðað hvort sérkennileg og áráttukennd hegðun myndi breytast milli athugana og hvernig. Tilgáta rannsóknarinnar var að börn sem koma ung til athugunar vegna gruns um röskun á einhverfurófi hafi ekki öll nægilega skýr einkenni sérkennilegrar og áráttukenndrar hegðunar til að uppfylla greiningarviðmið DSM-5 þótt slík hegðunareinkenni komi skýrt fram við endurmat. Þátttakendur voru öll börn sem komu til athugunar á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins á árunum 1997-2008 vegna gruns um röskun á einhverfurófi við 16-47 mánaða aldur og þar sem ADI-R greiningarviðtalið var notað (n=41). Stuðst var afturvirkt við upplýsingar úr sjúkraskrám við fyrstu athugun og endurmat. Niðurstöður voru að mörgu leyti háðar því hvaða greiningarmörk var stuðst við en hlutfall barna sem uppfyllti greiningarviðmið ICD-10 um röskun á einhverfurófi og greiningarviðmið DSM-5 við fyrstu athugun var frá 54% til 89%. Óháð greiningarmörkum voru tilfelli þar sem börn með greiningu um röskun á einhverfurófi samkvæmt ICD-10 uppfylltu ekki skilyrði DSM-5 við fyrstu athugun en við endurmat var skilyrðum DSM-5 fullnægt. Niðurstaðan styður að hluta tilgátu rannsóknarinnar. Þau börn sem náðu ekki greiningarmörkum við fyrstu athugun en uppfylltu skilyrði DSM-5 við endurmat gerðu það ekki einungis vegna þess að einkenni sérkennilegrar og áráttukenndrar hegðunar voru ekki nægilega skýr heldur einnig vegna þess að heildarfjölda einkenna fyrir frávik í félagslegu samspili og tjáskiptum var ekki fullnægt. Niðurstöður gefa tilefni til frekari rannsókna á breyttum greiningarviðmiðum.
Source: Skemman
Author: Linda Hrönn Ingadóttir 1985
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7008099589
Cites: 146
Cited by:
Related to: 10