Work

Association between sleep duration, sleep quality and self-esteem in adolescents in Iceland

Year: 2021
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Góður svefn er nauðsynleg forsenda heilbrigðs lífs. Þetta á sérstaklega við um unglinga þar sem nægur svefn stuðlar að eðlilegu þroskaferli. Þrátt fyrir það þá sofa börn minna á unglingsárunum og ekki í samræmi við ráðlagaðan nætursvefn. Að sama skapi þá sýna rannsóknir einnig að sjálfsálit lækkar á unglingsárunum. Tilgangur þessarar rannsóknar var að skoða samband svefnlengdar og svefngæða við sjálfsálit hjá unglingum í 9.bekk í grunnskóla á Íslandi (N = 22). Spurningarlistinn innihélt Rosenberg Self-Esteem scale, Pittsburgh Sleep Quality Index og spurningar um svefnvenjur. Niðurstöður sýndu að 11 þátttakendur sváfu minna en átta klukkustundir (M = 7.62) á nóttu á virkum dögum en enginn á frídögum (M = 9.43). Samanlagt sváfu þau rúmlega átta klukkustundir á nóttu að meðaltali. Niðurstöður sýndu einnig lág gildi á sjálfsálits kvarðanum, sem benti til þess að þátttakendur höfðu hátt sjálfsálit. Fylgnimælingar sýndu að ekkert samband var milli svefngæða og sjálfsálits. Hins vegar sýndu niðurstöður að miðlungs samband var á milli svefnlengdar og sjálfsálits (r(16) = -.56, p = .02), sem benti til þess að sjálfsálit jókst eftir því sem svefninn lengdist, sem er í samræmi við fyrri rannsóknir. \nLykilorð: svefn, unglingar, sjálfsálit, svefnlengd, svefngæði
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7008116170
Cites: 88
Cited by:
Related to: 10