Work

Börn sem verða vitni að heimilisofbeldi: Réttur barna til þátttöku í málum sem þau varða

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Réttindi barna eru jafnan flokkuð í þrennt og varða rétt þeirra til verndar, umönnunar og þátttöku. Vísbendingar gefa tilkynna að oftar en ekki er litið framhjá réttindum barna til þátttöku í barnaverndarstarfi. Í þessari heimildaritgerð er sjónum beint að börnum sem verða vitni að heimilisofbeldi, ásamt réttindum þeirra til þátttöku í málum sem þau varða. Meginmarkmið ritgerðarinnar er að kanna hvort og hvernig leitast er eftir þátttöku barna í þeim málum sem börn verða vitni að heimilisofbeldi. Þátttaka barna hefur fengið á sig aukna athygli m.a. á fræðilegu-, pólitísku- og klínísku sviði. Raunveruleg þátttaka barna í barnaverndarstarfi getur stuðlað að betri ákvörðunum og aukið líkurnar á að íhlutun og úrræði séu í samræmi við óskir og þarfir barna. Börn eru jafn mismunandi og þau eru mörg, þar af leiðandi tjá þau tilfinningar sínar, skoðanir og álit á mismunandi hátt. Færni og geta barna til þátttöku getur verið mismunandi, sum börn vilja tjá sig með orðum en önnur börn ekki. Félagsráðgjafar eru sérstaklega menntaðir til þess að starfa innan barnaverndar og því eru þeir í lykilstöðu þegar kemur að innleiða þátttöku barna. Helstu niðurstöður benda til þess að árangursrík þátttaka barna, felst í því að viðurkenna börn sem fullfæra einstaklinga til að hafa áhrif á eigið líf. Mikilvægt er að upplýsa börn um mál þeirra og heildarferli barnaverndar. Traust samband félagsráðgjafa og barns er einnig mikilvægur þáttur í árangursríkri þátttöku barna við mat og meðferð barnaverndarmála.
Source: Skemman
Author: Guðbjörg Yuriko Ogino
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7008351996
Cites: 41
Cited by:
Related to: 10