Work

Community-Acquired Pneumonia among Adults: Studies on selected factors which associate with severe disease and risk of death

Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Inngangur. Þrátt fyrir að næstum öld sé liðin frá uppgötvun penisillíns og að langt sé liðið síðan bólusetningar hófust gegn Streptococcus pneumoniae (pneumokokkum), algengasta orsakavaldi lungnabólgu fullorðinna, er enn um algengan og alvarlegan sjúkdóm að ræða. Með hækkandi aldri verður greining lungnabólgu oft erfiðari; einkenni verða gjarnan ósértækari, erfiðara er að ná góðum myndum af lungum og lengri tíma getur tekið fyrir íferðir í lungum að verða sýnilegar á myndrannsókn. Þrátt fyrir þetta er skortur á rannsóknum sem bera saman þá sem eru með klínísk einkenni lungnabólgu en án greinilegra íferða á lungnamynd við hina sem eru með samfélagslungnabólgu (klínísk einkenni ásamt staðfestri íferð á lungnamynd). Sumar fyrri rannsóknir hafa bent til þess að gjöf asetýlsalicýlsýru (ASA) geti dregið úr dauðsföllum í kjölfar lungnabólgu en aðrar ekki. Meinvaldar lungnabólgu geta skyndilega breyst eins og gerðist í heimsfaraldri SARS-CoV-2 og mikilvægt að bregðast við og lýsa nýjum sjúkdómum, s.s. þeim sem meinvaldurinn veldur, áhættuþáttum og mögulegri meðferð. Upplýsingar skortir um tengsl kæfisvefns við tilurð alvarlegar COVID-19 lungnabólgu, þar sem margir áhættuþættir sjúkdómanna eru sameiginlegir er mikilvægt að leiðrétta fyrir þeim. \nMarkmið. Í fyrsta lagi að bera saman tilfelli með klínísk einkenni lungnabólgu en án greinilegra íferða við tilfelli samfélagslungnabólgu með sérstaka áherslu á dánartíðni (Grein I). Í öðru lagi að kanna hvort ASA tengdist bættri lifun tilfella sem greindust með pneumokokkalungnabólgu (Grein II). Í þriðja lagi að kanna hvort kæfisvefn tengdist alvarlegri COVID-19 lungnabólgu (Grein III). \nEfni og aðferðir. Þrjú aðskilin gagnasöfn voru notuð. Í fyrsta lagi var gögnum safnað um tilfelli sem lögðust inn með grun um lungnabólgu á framskyggnan máta á eins árs tímabili 2018-2019 (grein 1). Í öðru lagi var notast við afturskyggnt gagnasafn allra staðfestra ífarandi pneumókokkasýkinga 1975-2019 á Íslandi. Í þriðja lagi var gagnasafn um öll tilfelli með COVID-19 á Íslandi árið 2020 notað og upplýsingar frá Landspítala um kæfisvefnstilfelli. \nGrein 1. Lógistísk aðhvarfsgreining var notuð til að meta dánartíðni við 30 daga eftir leiðréttingu fyrir aldri, kyni, Charlson stigun á sjúkdómsbyrði og fyrir 1 árs dánartíðni var einnig leiðrétt fyrir reykingum, búsetu á hjúkrunarheimili og tilvist meðferðartakmarkana. Framkvæmdar voru endurteknar tilreiknanir á gagnaeyðum, í 8.5% tilfella vantaði upplýsingar um reykingar. \nGrein 2. Öll tilfelli 1975-2019 á Íslandi sem höfðu jákvæða blóðræktun með S. pneumoniae og staðfesta lungnabólgu samkvæmt myndrannsókn af lungum voru í rannsóknarhópnum. Aðalsamanburðurinn fólst í að bera saman lifun við 30-daga, 90-daga og 1-ár með því að notast við líkindaskorsvigtun, eftir því hvort sjúklingarnir voru að taka ASA við greiningu sýkingarinnar. \nGrein 3. Öll tilfelli sem greindust með COVID-19 á árinu 2020 voru í úrtakinu, tilfelli sem höfðu farið í svefnskimun og reyndust með ≥5 öndunarhlé á mínútu voru skilgreind sem kæfisvefnstilfelli. Endapunktur rannsóknarinnar var dauði eða sjúkrahúsinnlögn. Framkvæmdar voru lógistískar aðhvarfsgreiningar og líkindaskorsvigtun, fyllt var í gagnaeyður með endurteknum tilreikningum. \nNiðurstöður. \nGrein 1. Klínísk einkenni lungnabólgu en án greinilegra íferða var um helmingi óalgengari innlagnarástæða en samfélagslungnabólga. Tilfelli með samfélagslungnabólgu voru líklegri til að mælast með hækkaðan líkamshita, hærra CRP, greinast með S. pneumoniae og að fá sýklalyfjameðferð en ólíklegri til að greinast með sýkingu af völdum öndunarfæraveira. Leiðrétt líkindahlutfall dauða þeirra sem voru með klínísk einkenni lungnabólgu en án íferða miðað við þá sem voru með samfélagslungnabólgu innan 30 daga var 0.86 (95% öryggisbil (ÖB) 0.40-1.85) en 1.25 (95% ÖB 0.81-1.95) við 1 ár. \nGrein 2. Tilfellin sem voru að taka ASA við innlögn voru ólík tilfellum sem voru ekki að taka lyfið þegar undirliggjandi sjúkdómar, reykingar, áfengisfíkn og aldur voru skoðuð. Ásættanleg leiðrétting náðist með líkindaskorsvigtun. ASA tilfelli höfðu betri lifun á tímabilinu 0-7 dögum eftir sýkingu (Hættuhlutfall (HH), 0.42, 95% CI 0.19-0.92), en ekki milli 7-30 daga eftir greiningu (HH 1.08, 95% CI 0.46-2.55). Meðal HH yfir 1 ár sýndi betri lifun ASA tilfella en þeirra sem ekki voru á lyfinu (HH 0.48, 9%CI 0.31-0.75). \nGrein 3. COVID-19 tilfelli sem höfðu kæfisvefn voru líklegri til að þurfa innlögn eða deyja en tilfelli sem voru með COVID-19 en ekki kæfisvefn í fullleiðréttu módeli (2.0 95% CI 1.2-3.2). Áhrifin voru sterkari í minna leiðréttum módelum. Næmisgreiningar sýndu svipuð áhrif. \nÁlyktanir. Klínísk einkenni lungnabólgu án íferða er algeng ástæða innlagna og þrátt fyrir að íferð sjáist ekki við myndrannsókn var dánartíðnin ekki marktækt lægri. Notkun á ASA tengist lægri dánartíðni þeirra sem greinast með ífarandi pneumókokkalungnabólgu en þörf er á rannsóknum sem leiðrétta fyrir mögulegri skekkju heilbrigðari notenda. Kæfisvefn er áhættuþáttur fyrir sjúkrahúsinnlögn eða dauða meðal þeirra sem greinast með COVID-19 að teknu tilliti til bjögunarþátta.
Author: Rögnvaldsson, Kristján Godsk
Language: Icelandic
Subfield: Epidemiology
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7008501667
Cites: 349
Cited by:
Related to: 10