Cognitive behavioral group therapy for general anxiety disorder : effectiveness study at the Icelandic Center for Treatment of Anxiety Disorders
Year: 2019
Type: dissertation
Study design: Clinical Trial
Abstract: Helsta markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort hugræn atferlismeðferð í hóp hefði áhrif á einkenni almennra kvíðaröskunar hjá íslensku fullorðnu fólki. Fáar rannsóknir hafa verið gerðar á Íslandi varðandi hugræna atferlismeðferð í hóp og engar á sértækri hugrænni atferlismeðferð í hóp fyrir fólk með almenna kvíðaröskun. Rannsóknin var gerð á klínísku úrtaki sem samanstóð af 33 þátttakendum (Meðalaldur = 35.9; Spönn: 19 – 66 ár), 30 konum (90.9%) og 3 körlum (9.1%). Öll fylltu þau út spurningalista sem metur einkenni almennra kvíðaröskunar, áhyggjur og óþol fyrir óvissu. Spurningalistarnir voru lagðir fyrir í upphafi meðferðar, á meðan henni stóð og í lok hennar, einnig í fjögurra vikna eftirfylgni. Niðurstöður voru bornar saman yfir tíma og áhrifastærðir reiknaðar fyrir mun á meðalskorum þátttakenda við upphaf og lok meðferðar. Niðurstöður bentu til að meðferðin hefði meðal áhrif á almenna kvíðaröskun (d = 0.68) og óvissuóþol (d = 0.61). Skor þátttakenda lækkuðu á öllum kvörðum sem styður það að meðferðin hafi verið árangursrík.\t \n \tEfnisorð: Almenn kvíðaröskun, óvissuóþol, hugræn atferlismeðferð, hópmeðferð, fullorðnir, árangursmat
Source: Skemman
Author: Sif Ragnarsdóttir
Institution: Reykjavík University
Language: Icelandic
Subfield: Experimental and Cognitive Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7008875452
