Work

Eigum við að lesa? : áhrif foreldra ungra barna á undirstöðuþætti læsis, lestrarferlið og viðhorf barna til lesturs.

Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Lokaverkefni þetta er fræðileg ritgerð, rituð með fræðslu til foreldra í huga. Viðfangsefni ritgerðarinnar er þríþætt: Í fyrsta lagi að miðla til foreldra hvað felst í hugtökunum læsi og bernskulæsi. Í öðru lagi verður rýnt í undirstöðuþætti læsis og í þriðja lagi er hlutverk foreldra skoðað, þau áhrif sem þeir geta haft á undirstöðuþættina og viðhorf barna til lesturs. Höfundum verksins þykir mikilvægt að foreldrar séu vel upplýstir um lestrarferlið og tengda þætti þess svo að þeir geti stutt börn sín á meðvitaðan hátt í lestrarferlinu. Þessi vitneskja er foreldrum ekki meðfædd og því er það í höndum leik- og grunnskólakennara að miðla til þeirra fræðslu. Einnig telja höfundar brýnt að foreldrar sé meðvitaðir um þau áhrif sem þátttaka þeirra og viðhorf til lesturs hefur á börn þeirra og viti með hvaða hætti þeir stuðla að góðum grunni hjá börnum sínum þegar þau hefja grunnskólagöngu sína. Höfundar öfluðu sér fræðilegra heimilda um efni ritgerðarinnar í bókum, rannsóknum og greinargerðum.
Source: Skemman
Authors: Lilja Rut Bech Hlynsdóttir 1984, Tinna Arnardóttir 1985
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7009300236
Cites: 39
Cited by:
Related to: 10