„Ég fékk að vinna mig upp í fullt starf á mínum hraða og það skipti bara öllu." Reynsla kennara af kulnun og endurkomu til vinnu
Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Hér á landi hefur kulnun kennara verið töluvert rannsökuð og gefa niðurstöður til kynna að álag í starfi kennara sé mikið og margt sem bendir til að það sé að aukast. Samhliða auknu álagi eru sífellt fleiri kennarar að upplifa kulnunareinkenni sem getur leitt til veikindafjarveru til lengri eða skemmri tíma. Markmið þessarar rannsóknar var að öðlast innsýn í reynslu kennara af kulnun og upplifun þeirra af því að hverfa af vinnumarkaði. Enn fremur var sjónum beint að bataferli þeirra sem og undirbúningi starfsendurhæfingar fyrir endurkomu til vinnu. Sérstaklega var kannað hvað reyndist styðjandi í þeirra veikindaferli og með hvaða hætti viðmælendur nýttu sér bjargráð til að mæta álagi í vinnu. Rannsókn þessi var framkvæmd með eigindlegri aðferðarfræði og byggir á viðtölum við sex fagmenntaða kennara sem eiga það sameiginlegt að hafa lent í kulnun og snúið aftur til starfa. Helstu niðurstöður gefa til kynna að kennarar séu undir miklu álagi í starfi sínu sem erfitt er að yfirstíga frá degi til dags og álagið fer síst minnkandi. Allir viðmælendur nefndu að agaleysi í kennslustund, úrræðaleysi innan skólans til að mæta þörfum nemenda og stöðug tímapressa séu miklir streituvaldar. Þá leiddu niðurstöður í ljós að við endurkomu til vinnu var stuðningur yfirmanna sem og sveigjanleiki til að minnka starfshlutfall lykilatriði þegar snúið var aftur til kennslu. Niðurstöður gefa sterklega til kynna að ef slíkur stuðningur var ekki til staðar gat það haft úrslitaáhrif á hvort kennarar ættu afturkvæmt í sitt fyrra starf. Afleiðingar þess að lenda í kulnun koma meðal annars fram í skertu álagsþoli og minna sjálfstrausti en starfsendurhæfing miðar að því að efla þessa þætti á ný áður en snúið er aftur til starfa. Að auki kemur fram að bjargráð eru mikilvæg til að bregðast við álagi og er þar helst núvitund, sjálfsmildi og breytt lífssýn sem stendur upp úr. Rannsóknin bendir á mikilvægi þess að efla forvarnir svo grípa megi fyrr inn í veikindaferli kennara en ekki síður á bæta starfsskilyrði kennara. Þá gefa niðurstöður rannsóknarinnar enn fremur til kynna að traust samskipti og vilji skólastjóra til að mæta starfsgetu kennara við endurkomu til vinnu skipti sköpum.
Source: Skemman
Author: Svala Björk Kristjánsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Demography
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7009410913
