Work

„Ég er búin að vera peð svo lengi ...“ : tilviksrannsókn á námi tveggja fullorðinna kvenna með mikla námserfiðleika

Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Meginefni lokaverkefnisins byggist á eigindlegri rannsókn, svonefndri tilviks¬rannsókn, á námi tveggja fullorðinna kvenna sem greindar eru með mikla náms¬erfiðleika. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvernig þeim farnaðist í námi í fram¬halds¬skóla og áhrif þess á sjálfsvitund þeirra og sjálf-straust. \nKonurnar ganga hér undir nöfnunum Aníta og Magnea. Kannaðir voru ýmsir þættir í tengslum við nám þeirra, s.s. reynslu af námi í framhaldsskóla og hvort hún var sambærileg reynslu þeirra í grunnskóla. Þá var skoðað hvort og hvaða hindranir urðu á vegi þeirra í námi við framhaldsskóla, hvaða fög voru erfið og/eða auðveld og ástæður þess, og hversu mikinn stuðning þær töldu sig þurfa til að ljúka námi. Ennfremur var athugað hvort tillit var tekið til námserfiðleika þeirra á meðan á námi stóð og hvort þær teldu að sjálfsvitund og sjálfsöryggi þeirra hefði styrkst á námstímabilinu. \nTil að leita svara við rannsóknarspurningum voru tekin hálfopin viðtöl við konurnar. Þær og rannsakandi héldu dagbækur á meðan á rannsókninni stóð og funduðu að jafnaði einu sinni í viku. Á fundunum tók rannsakandi viðtöl við þátttakendur, fór í gegnum námsefni og aðstoðaði með ýmsu móti. Konurnar fengu samfylgd í skóla, upplestur og aðstoð í prófum. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru eftirfarandi: Líðan kvennanna var oftast góð í framhaldsskólanum og gjörólík líðan í grunnskóla. Viðmót kennara og samnemenda var gott, en með undantekningum. Flestir kennarar vildu að¬stoða en virtust hvorki þekkja leiðir né lausnir. Námsefni þótti þeim mjög misjafnt og skipti útlit, hönnun og aðgangur að hljóðbókum miklu máli. Kennsluaðferðir kennara fannst þeim einhæfar og reynast frekar illa. Heimanám var þeim afar erfitt og tímafrekt og þurftu þær mikinn stuðning. Próf voru þeim kvíðvænleg og orðskilningur þeirra lítill. Konurnar töldu báðar að sjálfsvitund og sjálfstraust hefði aukist til muna á námstímabilinu. \n
Source: Skemman
Author: Gígja Baldursdóttir 1959
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7009436762
Cites: 70
Cited by:
Related to: 10