Work

Er glansmynd samfélagsmiðla orðin hluti af raunveruleika atvinnulífsins? Notkun samfélagsmiðla við starfsmannaval.

Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Hin síðustu ár hefur skilningur og áhugi á hinum mannlega þætti stjórnunar í atvinnulífinu aukist mjög í ljósi þess að litið er á mannauðinn sem einn af stærstu auðlindum skipulagsheilda. Skipulagsheildir keppast við að skapa samkeppnisforskot með því að leggja áherslu á að vanda val á starfsmönnum til styrkingar mannauðsins. Samtímis eiga sér stað örar tæknibreytingar sem hafa áhrif á viðskiptaumhverfið. Samfélagsmiðlar spila feikilega stórt hlutverk í lífi fólks og hjá því verður ekki komist að þeir verði líka hluti af hinu faglega umhverfi. Erlendar rannsóknir hafa sýnt að netið og samfélagsmiðlar eru mikið notaðir við starfsmannaval skipulagsheilda. Eigindleg rannsókn, byggð á 10 djúpum viðtölum við stjórnendur eða mannauðsfulltrúa meðalstórra og stórra skipulagsheilda var gerð á Íslandi í júlí og ágúst 2017. \nTilgangur rannsóknarinnar var að kanna ætlaðan tilgang bakvið notkun samfélagsmiðla við starfsmannaval. Leitað var vitneskju um vægi samfélagsmiðla við starfsmannaval, hvaða kosti þeir hafa í för með sér og hvað þarf að varast. Sérstök áhersla var lögð á að grafast eftir djúpri upplifun viðmælenda í gegnum ljósmyndir sem þeim voru sýndar. Niðurstöðurnar sýndu að allir viðmælendur höfðu notað eða notuðu samfélagsmiðla að einhverju leyti við starfsmannaval. Tilgangur þess að fletta umsækjendum upp á samfélagsmiðlum virtist almennt vera sá að afla sér betri eða ítarlegri bakgrunnsupplýsinga um umsækjandann, skoða tengsl við umsækjandann og kortleggja hans tengslanet, staðfesta eigin tilfinningu fyrir umsækjandanum eða til þess að útiloka síðri umsækjendur frá þeim hópi sem sótt hafði um. Niðurstöður bentu sterklega til þess að allir viðmælendur styddust mikið við athugun tengslanets umsækjenda gegnum samfélagsmiðla og þótti mörgum viðmælendum það góð leið til þess að afla óformlegra umsagna. Mismikið vægi var lagt við notkun samfélagsmiðla við starfsmannaval og virtist það helst stýrast af í hvaða starf væri verið að ráða. Mörg varúðarverð atriði komu fram sem snéru að því að umsækjandinn stjórnar því sjálfur hvernig hann birtist á samfélagsmiðlinum auk þess sem samfélagsmiðlar umsækjenda eru misvel opnir almenningi. Einnig var komið inná þá fordóma sem ráðningaraðili kann að hafa gagnvart 6 því sem kemur fram á samfélagsmiðlasíðum umsækjenda. Þegar viðmælendum voru sýndar myndir af mismunandi fólki urðu viðbrögðin athyglisverð og lýstu því á hve mismunandi hátt mismunandi aðilar upplifa umsækjendur eins og þeir birtast á samfélagsmiðlum. Ljóst er að notkun samfélagsmiðla við val á starfsumsækjendum er hjálpartæki sem komið er til að vera. Þó má ætla að aðferðin sé ný af nálinni og að í takt við hraðar framfarir í tækni nútímans megi vænta frekari þróunar og breytinga hér á.
Source: Skemman
Author: Gyða Kristjánsdóttir 1989
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7009509596
Cites: 20
Cited by: 1
Related to: 10