„Ef maður þvingar sig í þetta þá er það ekkert skemmtilegt lengur“: Bóklestur og bókmenntakennsla í framhaldsskólum
Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Í þessari ritgerð er sjónum beint að lestri og bókmenntakennslu í framhaldsskólum. Bókmenntakennsla í íslenskum framhaldsskólum hafði lítið verið rannsökuð fyrr en með tilkomu ÍNOK-rannsóknarinnar sem lauk árið 2018 og hér verður reynt að dýpka þekkingu á því viðfangsefni enn frekar. Markmið rannsóknarinnar er tvíþætt, annars vegar að kanna viðhorf framhaldsskólakennara og nemenda til þeirra bókmennta sem lesnar eru í skólunum og hins vegar að athuga hvort ástæða sé til að gera einhverjar breytingar þar á til að koma til móts við dvínandi lestrargetu og -áhuga ungmenna. Til þess að varpa ljósi á viðfangsefnið voru tekin viðtöl við fimm kennara og þrettán nemendur úr þremur framhaldsskólum og fóru þau viðtöl fram í byrjun febrúar 2020. \nHelstu niðurstöður rannsóknarinnar eru annars vegar þær að greinileg þörf er á því að gera einhverjar breytingar á bókmenntalestri í framhaldsskólum. Nemendur kalla eftir breytingum, þeir vilja flestir fá meira um það að segja hvers konar bókmenntir þeir lesa og eru fæstir hrifnir af því að lesa bækur sem standa þeim fjarri, bæði hvað varðar efni og tíma. Kennarar eru meðvitaðir um að breytinga sé þörf á bókmenntalestri og kennslu almennt til að takast á við þá stöðu sem upp er komin varðandi lestur og læsi ungmenna, en þó má greina uppgjafartón í mörgum kennurum sem sjá ekki fram á að slíkar breytingar verði í bráð. \nHins vegar sýna niðurstöður rannsóknarinnar greinilega að val á bókmenntum er ekki það eina sem skiptir máli þegar kemur að því að vekja og viðhalda áhuga nemenda á lestri. Þó nemendur kalli eftir breytingum á bókmenntalestri í framhaldsskólum má greina á svörum þeirra að góður kennari geti skipt enn meira máli en efnið sjálft. Góður kennari getur vel gert leiðinlegt eða óáhugavert efni skemmtilegt en á sama tíma getur áhugalítill eða slæmur kennari snúið áhugaverðu efni upp í andstæðu sína. Því er ljóst að ef markmiðið er að efla áhuga nemenda á bóklestri skiptir gríðarlega miklu máli að kennarar noti fjölbreyttar kennsluaðferðir, sýni efninu sjálfir áhuga og leggi sig fram um að ná til nemenda. \n
Source: Skemman
Author: Sigríður Diljá Vagnsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7009510216
