Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Endurhæfing er árangursríkt ferli sem dregur úr veikindum og stundum dauðsföllum, tengist mörgum sjúkdómum og bætir lífsgæði aldraðra. Tilgangur þessarar heimildasamantektar var að greina frá hvað felst í endurhæfingu aldraðra og hver staða öldrunarendurhæfingar er á Íslandi. Þá var leitast við að skoða hlutverk hjúkrunarfræðinga í endurhæfingu aldraðra. \nAldraðir eru vaxandi hópur í þjóðfélaginu, lifa lengur og búa stóran hluta ævi sinnar við skerðingu. Áhersla stjórnvalda er lögð á að einstaklingurinn geti búið á eigin heimili eins lengi og kostur er með þeim stuðningi sem viðkomandi þarfnast. Ásamt því að efla heilsugæslu, teymisvinnu og endurhæfingu. Í stuttu máli gengur endurhæfing út á fimm þætti, mat, markmiðasetningu, endurhæfingaráætlun, inngrip og endurmat. Það sem einkennir endurhæfingu er m.a. persónumiðuð nálgun sem byggir á meðferðarsambandi og samskiptum fagfólks og skjólstæðinga þar sem mikilvægt er að skjólstæðingurinn sé virkur þátttakandi í meðferðinni. Þverfagleg teymisvinna er árangursríkur þáttur í endurhæfingunni. Hjúkrunarfræðingar gegna mikilvægu hlutverki í teymisvinnu þar sem þeir eru í miklum tengslum við skjólstæðinginn og fjölskyldu hans ásamt því að vera tengiliður við hina ólíku fagaðila í endurhæfingarteyminu. \t\t\t\t\t\t\t\tSú endurhæfingarþjónusta sem er í boði er frá félagslegu heimaþjónustunni, þjónustumiðstöðvum aldraðra á vegum sveitarfélaga, heimahjúkrun á vegum heilsugæslustöðva, dagvistun, endurhæfingar- og hvíldarinnlagnir. Allt úrræði sem auka færni, sjálfstæði og fyrirbyggja ótímabæra afturför hins aldraða. Samkvæmt lögum aldraðra ber hjúkrunarheimilum að bjóða upp á sjúkraþjálfun en misjafnt er eftir kringumstæðum hverrar stofnunar hversu vel er gert í þeim efnum. Ef ekki er aðstaða á heimilinu þarf stofnunin að útvega viðkomandi aðgang annarsstaðar. \nAuka þarf vitundarvakningu heilbrigðisstarfsmanna og samfélagsins á jákvæð áhrif öldrunarendurhæfingar. Þjónustan í endurhæfingu aldraðra er takmörkuð og í mörgum tilfellum ómarkviss en jákvæð þróun hefur orðið í heimaþjónustu. Vísbendingar eru um að þverfagleg öldrunarendurhæfing er grunnur að markvissri og árangursríkri endurhæfingu og stuðlar að bættri færni og lífsgæðum aldraðra. \nMeginhugtök: Öldrun, endurhæfing, fötlun, teymisvinna, hvíldarinnlögn, heilsuefling.
Source: Skemman
Authors: Áslaug Árnadóttir 1965, Sunna Lind Svavarsdóttir 1987, Unnur María Þorbergsdóttir 1971
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7009523582
