Work

Endurtekin segulörvun á heila við meðferðarþráu og langvinnu þunglyndi. Uppgjör á árangri meðferðarinnar fyrstu 15 mánuðina á Heilaörvunarmiðstöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins 2022-2023

Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Inngangur: Þunglyndi er algengur, alvarlegur og oft langvinnur sjúkdómur og leiðandi orsök heilsubrests í heiminum. Það er nú önnur algengasta ástæða örorku á heimsvísu og eitt mesta lýðheilsuvandamál nútímans. Þunglyndi veldur mikilli vanlíðan, færni- og lífsgæðaskerðingu og því fylgir oft vonleysi og hjálparleysi. Það er helsta ástæða sjálfsvíga meðal karla og kvenna. Ársalgengi þunglyndis er 5-10%, tvöfalt hærra hjá konum en körlum, og lífstíðaralgengi að minnsta kosti 20%. Allt að þriðjungur þunglyndra fær litla eða enga svörun af þunglyndislyfjameðferð. Talað er um meðferðarþrátt þunglyndi ef fólk svarar ekki meðferð með tveimur þunglyndislyfjum í a.m.k. 6 vikur með hvoru lyfi í meðferðarskömmtum. Síðustu áratugi hefur meðferð með segulörvun komið fram á sjónarsviðið sem meðferðarúrræði við meðferðarþráu þunglyndi. Frá því í janúar 2022 hefur Heilaörvunarmiðstöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins boðið upp á segulörvunarmeðferð fyrir fullorðna sem þjást af meðferðarþráu eða langvinnu þunglyndi. Markmið rannsóknarinnar er að meta árangur meðferðarinnar. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var afturskyggn ferilrannsókn. Þátttakendur voru einstaklingar sem hófu og luku eða hættu í segulörvunarmeðferð hjá Heilaörvunar-miðstöðinni frá 26. janúar 2022 til 30. apríl 2023. Rannsóknin byggði á svörum þátttakenda við sjálfsmatskvörðum sem lagðir voru fyrir í upphafi meðferðar, á meðan á meðferð stóð og við lok meðferðar. Sjálfsmatskvarðarnir sem notaðir voru eru PHQ-9 og BDI-II til að meta þunglyndi, GAD-7 til að meta kvíða, auk lífsgæðakvarða, QOLS, og heildarmats á breytingu, PGIC. Upplýsingum um fyrri meðferð var einnig safnað úr tilvísunum og sjúkraskrám þátttakenda. Niðurstöður: Á tímabilinu fengu 57 einstaklingar segulörvunarmeðferð hjá Heilaörvunarmiðstöðinni (64,9% konur, unipolar þunglyndi 84,2%, en bipolar þunglyndi 15,8%). Hlutfall þátttakenda sem svaraði meðferðinni (≥50% lækkun á PHQ-9 eða BDI-II) samkvæmt PHQ-9 og BDI-II var 34,5% og 42,0%, og hlutfall þeirra sem fóru í fullt sjúkdómshlé samkvæmt PHQ-9 (<5) og BDI-II (<14) var 14,5% og 32,0%. Brottfallshlutfall var aðeins 10,5%. Ekki komu fram neinar alvarlegar aukaverkanir við meðferðina. Ályktanir: Árangur segulörvunarmeðferða Heilaörvunarmiðstöðvarinnar við meðferðar-þráu og langvinnu þunglyndi er sambærilegur niðurstöðum erlendra rannsókna. Rannsóknin bendir til þess að segulörvunarmeðferðir Heilaörvunarmiðstöðvarinnar séu öruggt og virkt meðferðarúrræði við meðferð á meðferðarþráu og langvinnu þunglyndi.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7009561083
Cites: 79
Cited by:
Related to: 10