Work

Erfið fæðingarreynsla : afleiðingar og möguleg meðferðarúrræði til bættrar þjónustu

Year: 2009
Type: dissertation
Abstract: Í þessu verkefni er leitast við að lýsa fæðingarreynslunni og hennar helstu áhrifaþáttum, \násamt því að gera grein fyrir jákvæðri og neikvæðri upplifun með áherslu á neikvæða \nfæðingarreynslu og alvarlegum afleiðingum hennar, nánar tiltekið áfallastreituröskun og \nfæðingarótta. Þessu til viðbótar er helstu meðferðarúrræðum lýst með tilliti til andlegra kvilla \neftir barnsfæðingu í þeim tilgangi að varpa ljósi á hvað hægt er að gera til að draga úr eða koma í \nveg fyrir umrædd vandamál og um leið að stuðla að bættri þjónustu á sviði kvenlækninga og \nljósmóðurfræða. \nVið heimildaleit var stuðst við leitarvefina Medline, Psychinfo, Scopus, Cinahl, Pubmed \nog Google scholar en rannsóknir varðandi viðfangsefnið eru margar talsins og er þær helst að \nfinna á sviði sálarfræða, læknisfræða, hjúkrunar- og ljósmóðurfræða. Mikil þörf virðist vera á \numfjöllun viðfangsefnisins og er áherslan sem neikvæð fæðingarreynsla fær í þessari ritgerð talin \nnauðsynlegt innlegg í þeim tilgangi að vekja athygli á alvarleika hennar og óæskilegum en \njafnframt meðfærilegum afleiðingum. Þörfin á umfjöllun er ekki síður til staðar með tilliti til \nbættrar þjónustu og bættrar andlegrar heilsu nýbakaðra mæðra. Varðandi frekari \nrannsóknarvinnu virðist vera þörf á rannsóknum tengdum forvörnum og meðferð en ekki síður \ntengdum rekstri og stefnumótun þjónustunnar með tilliti til fæðingarreynslunnar. Niðurstaðan er \nsú að fæðingarreynslan hefur víðtæk áhrif á einstaklinginn, neikvæðar afleiðingar þarfnast frekari \nathygli, ásamt því að meðferðarúrræði séu gerð aðgengilegri í þeim tilgangi að bæta \nheilbrigðisþjónustuna með langtíma árangur í huga.
Source: Skemman
Author: Sigrún Skúladóttir 1974
Institution: Bifröst University
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7009696818
Cites: 82
Cited by:
Related to: 10