Expression of cathelin-related antimicrobial peptide (CRAMP) in the mouse meninges and connection with meningeal inflammation
Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Mígreni er algengur kvilli sem hrjáir um 15% fullorðinna og er um þrisvar sinnum algengari meðal kvenna. Mígreni lýsir sér sem alvarleg höfuðverkjaköst sem gjarnan fylgir ljósfælni og fleiri einkenni, og á upptök sín í æða- og taugakerfinu. Mígreni getur haft alvarleg áhrif á daglegt líf sjúklinga, en um 10% mígrenis sjúklinga fá köst vikulega. Orsök mígrenis má að hluta til rekja til taugabólgu í heilahimnunum. Mast frumur staðsettar í heilahimnunum losa frá sér bólguvaldandi efni sem eru numin af skyntaugum í kring. Við virkjun skyntauganna losa þær frá sér taugaboðefni, svo sem CGRP (calcitonin gene-related peptide), sem aftur virkjar mast frumurnar og verður jákvæð afturvirkni. Taugar í heilahimnunum leiða boð til þrenndarhnoðunnar, sem ber þau áfram til heilans þar sem unnið er úr sársaukaboðunum. \nMeðal bólguvaldandi efna, losuðum af mast frumum, eru örverudrepandi peptíð. Markmið þessa verkefnis var að kanna tjáningu og seytingu örverudrepandi peptíðsins CRAMP (cathelin-related antimicrobial peptide) sem tjáð er í músum og er hliðstæða cathelicidin peptíðsins LL-37 í mönnum. Tjáning og seyting CRAMP í heilahimnunum var könnuð og jafnframt voru áhrif bólgusvars á tjáningu og seytingu þess könnuð. Aðallega var notast við tvær aðferðir: qPCR, til að bera saman genatjáningu, og dot blot, til að meta seytingu peptíðsins.
Source: Skemman
Author: Valgerður Jakobína Hjaltalín
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Neurology
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7009755811
