Fegraður eða fullkominn veruleiki? Samanburður á birtingarmynd íslenskra og skandinavískra mæðra á samfélagsmiðlum
Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Markmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á hvernig birtingarmynd áhrifavalda í mæðrahlutverki er á Íslandi og í Skandinavíu. Tilgátan sem sett var fram er sú að mömmubloggarar og „Instamæður“ setji fram fegraða mynd af veruleikanum og fylgi fagurfræðilegu mynstri í framsetningu prófíla sinna. Því var tilvalið að kanna hver munurinn væri á milli íslenskra og skandinavískra áhrifavalda. Kenningar fræðimannanna Charles Horton Cooley og Erving Goffman um sjálfið og birtingarmyndir þess eru hafðar að leiðarljósi ásamt fyrirliggjandi rannsókna um mæður á samfélagsmiðlum og áhrifa glansmyndarinnar á fylgjendur. Framkvæmd var þemagreining á Instagram prófílum tíu mömmu áhrifavalda, fimm íslenskra og fimm skandinavískra, til þess að skoða hver birtingarmynd þeirra væri á miðlinum. Áhrifavaldarnir sem skoðaðir voru eru Sólrún Diego, Hanna Davíðsdóttir, Tinna Björk Kristinsdóttir, Ingileif Friðriksdóttir, Erna Kristín Stefánsdóttir, Line Bjoerk, Kenza Zouiten Subosic, Julie Lorentzen, Fia Anderberg og Amanda Moritz. Niðurstöður sýndu fram á að það eru gríðarlega mörg sameiginleg einkenni með mömmu bloggurum. Það birtist ákveðin fagurfræði, tískustraumur í útliti prófílanna sem gera það að verkum að það er pressa að láta allt líta út fyrir að vera fullkomið. Einnig sýndu þær fram á skilyrðislausa jákvæðni og hvatningu til fylgjenda um ýmis málefni, til dæmis breytta líkamsmynd eftir barnsburð eða erfiðleika með að verða barnshafandi. Að lokum er rætt um hvernig þessi glansmynd birtist restinni af samfélaginu og hvaða staðla samfélagsmiðlar eru að setja fyrir því að vera fullkomin móðir.
Source: Skemman
Author: Þórdís Ingvarsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Gender, Feminism, and Media
Subfield: Gender Studies
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7009926025
