Work

„Getum við farið í leik?“ : hvernig nýti ég hreyfingu og leiki í kennslu til að auka námsárangur, vellíðan og heilsu hjá nemendum í 5. bekk?

Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Um er að ræða starfendarannsókn þar sem ég rýndi í starf mitt sem umsjónarkennari á fyrsta starfsári í grunnskóla. Tilgangurinn með verkefninu var að skoða hvernig mér tækist að kenna bóklega námsþætti í gegnum hreyfingu og leiki. Markmiðið var að efla mig sem fagmann og starfa í takt við starfskenningu mína. Verkefnið ber nafnið „Getum við farið í leik!“ og var rannsóknarspurningin: Hvernig nýti ég hreyfingu og leiki til að auka námsárangur, vellíðan og heilsu hjá nemendum í 5.bekk? Rannsóknin skiptist í tvö rannsóknartímabil, fyrra tímabilið var frá september og út nóvember 2019 og það seinna var frá janúar 2020 og fram í miðjan mars 2020. Rannsóknargögn voru rannsóknardagbók, kennsluáætlanir, viðhorfakönnun og verk nemenda ásamt ljósmyndum úr starfinu. \nHelstu niðurstöður leiddu í ljós að rannsóknartímabilin reyndust mér mis erfið, ég notaði leiki og hreyfingu meira á seinna tímabilinu. Seinna tímabilið reyndist auðveldara en það fyrra. Fyrra tímabilið einkenndist af notkun vinnubóka, agavandamálum og andlegri bugun en á seinna tímabilinu nýtti ég meira hreyfingu og leiki í kennslu. Ég tel helstu skýringar á því vera að á seinna tímabilinu var ég búin að kenna í nokkra mánuði og komin með meiri reynslu, sjálfsöryggi og lét agavandamál ekki hafa eins mikil áhrif á mig. Viðhorf nemenda gagnvart leikjum var jákvætt og nemendur voru virkir og áhugasamir þegar fjölbreyttar kennsluaðferðir voru notaðar. \n\tMeð því að framkvæma þessa rannsókn tel ég að ég hafi náð að þróa með mér þekkingu sem ég kem til með að nýta mér sem grunnskólakennari í framtíðinni. Sú þekking auðveldar mér að búa til jákvætt námsumhverfi fyrir nemendur, vinna skapandi verkefni og mæta nemendum með hliðsjón af áhuga þeirra svo að þeir séu virkir í sínu námi. Með því skapa ég forsendur fyrir því að nám geti átt sér stað.
Source: Skemman
Author: Ásdís Rós Clark
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7009951524
Cites: 17
Cited by:
Related to: 10