Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Þetta meistaraverkefni samanstendur af stafrænu námskeiði og greinargerð um gerð kennslumyndskeiða fyrir vinnustaði. Fyrir stóra vinnustaði sem hafa jafnvel starfsstöðvar víða um landið eða heiminn, er stafræn fræðsla sem inniheldur kennslumyndskeið mjög hentug leið til fræðslu því hún er aðgengileg hvar og hvenær sem er. \nÍ þessari tilviksrannsókn er tilvikið stafrænt námskeið við gerð kennslumyndskeiða rannsakað. Leitað var gagna í alþjóðlegum gagnasöfnum, sem birta sannreyndar rannsóknir, að svörum við rannsóknarspurningunni: Hvað skiptir máli við gerð kennslumyndskeiða fyrir nám á vinnustað, fyrir fjölbreyttan nemendahóp? Hvað getur vitsmunasálfræðin lagt af mörkum til að teknar verði upplýstar ákvarðanir um gerð kennslumyndskeiða sem auka skilning og viðhalda áhugahvöt nemenda? Út frá þeim niðurstöðum var námsefnið útbúið. Þessi greinargerð fjallar um lærdóm minn af rannsókninni og hönnun námskeiðsins. \nNiðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að þegar kennslumyndskeið eru útbúin ætti að styðjast við margmiðlunarreglur sem unnar eru út frá hugrænu kenningunni um margmiðlunarnám (e. Cognitive Theory of Multimedia Learning, CTML). Þær eiga rætur að rekja til vitsmunasálfræðinnar. Þessar reglur lýsa aðferðum sem hægt er að nota við gerð kennslumyndskeiða til að draga úr óviðkomandi úrvinnslu, stjórna nauðsynlegri vinnslu og auka skapandi úrvinnslu nemenda. Þessar aðferðir auka yfirfærslu og skilning nemenda. Þar að auki geta kennslumyndskeið náð til fjölbreyttari hóps nemenda ef við útrýmum hindrunum í námi með því að styðjast við þrjár meginreglur fengnar úr hugmyndafræði um Altæka hönnun náms (AHN) með því að: veita fjölbreyttar leiðir til náms, veita fjölbreyttar leiðir til athafna og tjáningar og veita fjölbreyttar leiðir til virkjunar á áhugahvöt. \nGreinargerðin getur nýst fyrirtækjum og öðrum stofnunum til að taka upplýstar ákvarðanir um gerð kennslumyndskeiða sem mætir þörfum flestra nemenda og eykur áhuga og skilning þeirra. Námsefnið getur stutt við kennara og aðra hönnuði námsefnis til að útbúa kennslumyndskeið sem eru aðgengileg, skýr og skilvirk, og hjálpa um leið nemendum að ná árangri í námi sínu.
Source: Skemman
Author: Ingibjörg Emilsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Applied Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7009952410
