Fjarvinna á tímum Covid-19 : hver er upplifun mannauðsstjóra af þeim áhrifum sem aukin fjarvinna vegna Covid-19 hefur haft á vinnustaðinn?
Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna hvernig mannauðsstjórar upplifðu áhrifin af aukinni fjarvinnu vegna Covid-19 á vinnustað þeirra. Skoðað var hvaða áskorunum mannauðsstjórarnir stóðu frammi fyrir og hversu vel fyrirtækið var undirbúið, hvort til hafi verið viðbragðsáætlanir til að bregðast við krísu sem þessari þar sem skyndilega var komið á samkomutakmörkunum, og hvort þekking og tækjabúnaður hafi verið til staðar til að takast á við breytingarnar. Líðan starfsfólks var einnig tekin fyrir, ásamt aðstæðum heima fyrir hjá þeim sem þurftu að vinna heima. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð og tekin voru viðtöl við tólf mannauðsstjóra fyrirtækja sem skráð eru í Kauphöllinni. \nNiðurstöður leiddu í ljós að margt gekk vel og sumt betur en hægt var að vona. Mannauðsstjórarnir voru almennt mjög jákvæðir yfir því hvernig til tókst og sáu möguleika á margvíslegri hagræðingu fyrir fyrirtækin og starfsfólkið. Meðal jákvæðra þátta sem mannauðsstjórar nefndu voru: færri ferðir á fundi og ráðstefnur, möguleikar á að draga saman í húsnæði, aukið jafnvægi milli vinnu og einkalífs með sveigjanlegri vinnutíma starfsfólks, minni mengun og að dregið hafi úr margvíslegum öðrum kostnaði. Vinnustaðir voru þó misvel undirbúnir til að mæta þessari áskorun s.s. varðandi tækni- og tækjabúnað. Einnig voru aðstaða og aðstæður starfsmanna misjafnar til að vinna í fjarvinnu. Heilt yfir virtust allir leggjast á eitt og íslenska mottóið „Þetta reddast“ virðist svo sannarlega hafa átt við.
Source: Skemman
Author: Margrét Gísladóttir
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7010069095
