Work

Gleymda stríðið í Evrópu: Frá innrásinni í Georgíu til innrásarinnar í Úkraínu og viðbrögð Vesturlanda við þeim

Year: 2025
Type: dissertation
Abstract: Á meðan heimurinn horfði Ólympíuleikanna 2008 hóf Rússlandsher að gera innrás í nágrannaríki sitt Georgíu. Tæpum 14 árum seinna undir svipuðum kringumstæðum endurtóku Rússar þetta, nema í þetta skiptið varð Úkraína, annað nágrannaríki þess fyrir barðinu. Bæði löndin voru hluti af Sovétríkjunum, ásamt Rússlandi. Litið er á Rússland sem arftaka Sovétríkjanna og telja því stjórnvöld þar að bæði Georgía og Úkraína falli undir áhrifasvæði sitt. Hægt er að rekja ástæður innrásarinnar til aukins áhuga ríkjanna á að ganga inn í NATÓ og Evrópusambandið. Vesturlöndin brugðust mismunandi við þessum innrásum, í fyrri innrásinni með því að kalla eftir vopnahéi með óhagstæðum samningi fyrir Georgíu, en í síðari með að styðja við bakið á Úkraínu. Út frá kenningum um mótunarhyggju og raunhyggju er hægt að skoða og greina hvað varð til þess að viðbrögð Vesturlanda væru svona ólík. Niðurstaðan er sú að út frá minnkandi trausti á milli Vesturlanda og Rússlands í kjölfar innlimun Krímskaga. Það varð til að samband þeirra versnaði, Vesturlönd fóru að líta á Rússland sem ótraustan aðila sem ekki sé hægt að treysta á til friðarviðræða.
Source: Skemman
Author: Grétar Þór Halldórsson
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7010122338
Cites: 54
Cited by:
Related to: 10