Work

Grunnur lagður að skimunartæki fyrir málþroskaröskun fullorðinna

Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Markmiðið með þessu meistaraverkefni er að leggja grunn að íslensku skimunartæki sem metur málþroskaröskun fullorðinna. Málþroskaröskun (e. developmental language disorder) felur í sér umfangsmikla erfiðleika í notkun og tileinkun máls vegna skertrar færni til tjáningar og/eða skilnings á tungumálinu. Málþroskaröskun helst að einhverju leyti í hendur við ADHD, einhverfu og hegðunarröskun og einstaklingar með málþroskavandamál eiga oft erfitt uppdráttar á fullorðinsaldri. Málþroskaröskun er algengasta taugaþroskaröskunin meðal barna (7%), en skortur er á matstækjum fyrir málþroskaröskun á fullorðinsaldri, bæði hér á landi og erlendis. Með því að þróa tæki sem skimar fyrir málþroskavanda á meðal fullorðinna er hægt að veita þeim einstaklingum sem glíma við vandamál viðeigandi stuðning og aukin tækifæri. \nÍ rannsókninni sem hér er til umfjöllunar var sjónum beint að Modified Token Test (MTT) sem er í auknum mæli notað í rannsóknum á málþroskaröskun fullorðinna í enskumælandi löndum. Þar sem um er að ræða fyrsta skrefið í þróun á skimunartæki fyrir málþroskavanda fullorðinna var rannsóknin lögð fyrir þátttakendur úr almennu þýði. Rannsakandi þýddi MTT á íslensku og lagði fyrir þátttakendur ásamt mælitækjum sem meta málskining, lesblindu og tjáskiptafærni, auk annarra spurninga um málfærni, málþroska og lestur. Leitað var svara við því hvort dreifing skora á MTT sé nægileg til að nota prófið við skimun á málþroskaröskun meðal fullorðinna. Einnig voru tengsl MTT við önnur matstæki og mælingar rannsóknarinnar könnuð. \nÞátttakendur rannsóknarinnar voru 31 einstaklingur á aldrinum 18-30 ára. Þátttakendur þurftu ekki að vera með greiningu á málþroskaröskun, lestrarerfiðleikum eða öðrum frávikum í taugaþroska. Kallað var eftir þátttakendum á meðal nemenda í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, starfsmanna Félagsmiðstöðvarinnar Þorpsins og starfsmanna í Elkem Grundartanga. \nNiðurstöður rannsóknarinnar eru að fylgni er á milli MTT og Setningafræðiprófsins en þær niðurstöður eru í takt við erlendar rannsóknir að því leyti að þær gefa til kynna að MTT meti málskilning og heyrnræna úrvinnslu setninga. Dreifing á skori þátttakendanna á MTT bendir til þess að það sé næmt á einstaklingsmun í þeim hluta málfærni sem prófið mælir. Þessi rannsókn er skref í átt að þróun á fjölþátta matstæki sem getur mætt þörfum talmeinafræðinga víða, bæði í skólakerfinu og rannsóknum. Þar sem MTT metur einungis einn þátt málfærni (heyrnræna úrvinnslu) er það ekki nóg eitt og sér til að meta málþroskaröskun í heild sinni en er vissulega vænleg leið til skimunar.
Source: Skemman
Author: Jensína Kjerúlf Kristinsdóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7010161619
Cites: 59
Cited by:
Related to: 10